Rýr kvóti næstu ár 6. júní 2009 06:00 Sá guli kominn í ís Aflaklær verða að bíða uns þorskárgangi 2008 vex fiskur um hrygg en þá verður hægt að úthluta mun meiri kvóta.
Hafrannsóknastofnun (Hafró) leggur til að þorskkvótinn á næsta fiskveiðiári verði 150 þúsund tonn. Það er tíu þúsund tonnum minna en á yfirstandandi fiskveiðiári. Þó ber þess að geta að upphaflega var úthlutað 130 þúsund tonnum í fyrra og þar með farið eftir ráðleggingum Hafró en síðan var 30 þúsund tonnum bætt við. Útlit er fyrir að þess verði að bíða í þrjú til fjögur ár uns hægt verði að úthluta verulega meiri afla en nú. Einnig leggur stofnunin til að verulega verði dregið úr veiðum á ufsa og ýsu. Þar að auki er útlitið ekki gott fyrir loðnuvertíð næsta vetur en hins vegar mun betra fyrir veturinn þar á eftir. Í skýrslu stofnunarinnar sem kynnt var fjölmiðlum í gær segir að heildarafli úr íslenska þorskstofninum árið 2008 hefði verið 147 þúsund tonn sem sé lægsti ársafli í hartnær 70 ár. Jóhann Sigurjónsson „Þessi litli afli helgast náttúrlega af því að við erum að skera niður til að byggja upp til framtíðar,“ segir Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró. „Hefðum við veitt af sama sóknarþunga og við gerðum fyrir nokkrum árum þá gætum við auðveldlega veitt 250 þúsund tonn en þá værum við heldur ekki að ná markmiðum okkar um uppbyggingu á hrygningarstofni þorsks og að ná þeirri aldursbreidd í stofninum sem við teljum algjörlega nauðsynlega til að auka líkurnar á nýliðun í framtíðinni.“ Hafró hefur frá árinu 2007 miðað við 20 prósenta veiðihlutfall og hefur ný ríkisstjórn staðfest þá nýtingarstefnu til næstu fimm ára. Friðrik J. Arngrímsson Jóhann segir enn fremur að árangurinn af uppbyggingunni komi í ljós eftir þrjú, fjögur ár eða þar til hægt verður að veiða úr þorskárganginum 2008. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útgerðarmanna (LÍÚ), segir að þótt sjómenn hafi fundið fyrir góðu fiskiríi upp á síðkastið komi þessi niðurstaða þeim ekki á óvart. „Við vorum búnir að sjá það eftir togararallið að við ættum von á einhverju á þessa leið,“ segir hann. Hann segir enn fremur að ljóst mætti vera að dregið verði úr ýsuveiðum en þær hafa verið meiri en nokkru sinni undanfarin ár. „En almennt eru sjómenn þeirrar skoðunar að ástand stofnanna sé mun betra en þessi gögn Hafró gefa til kynna,“ segir hann. jse@frettabladid.is
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Sjá meira