Lögreglan íhugaði að óska eftir liðsinni frá Danmörku 6. febrúar 2009 15:41 Haraldur Johannesen. MYND/EOL
Ríkislögreglustjóri íhugaði að leita liðsinnis dönsku lögreglunnar þegar mótmælin gegn ríkisstjórninni stóðu sem hæst. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá embættinu og einnig sagt að komið hafi til álita að flytja hingað til lands sérbúnar bifreiðar til þess að nota gegn mótmælendum. Þessir möguleikar voru kannaðir í fullu samráði við lögregluna á höfuðborgarsvæðisins og dómsmálaráðherra. Áður en til þess kom að ákveða nokkuð fjöruðu mótmælin út. „Eitt af hlutverkum lögreglunnar er að tryggja öryggi borgaranna og lögreglumanna í starfi. Við þær aðstæður sem hér ríktu í janúarmánuði síðastliðnum lagði ríkislögreglustjóri til mannskap til löggæslustarfa bæði úr eigin liði og frá nálægum lögregluembættum auk þess að útvega lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu margvíslegan búnað," segir meðal annars í yfirlýsingunni. „Meðal þess sem ríkislögreglustjóri kannaði, meðan á þessu óvenjulega ástandi stóð, var hvort rétt væri að leita liðsinnis dönsku lögreglunnar og fá hingað til lands sérbúnar bifreiðar, en náið samstarf er á milli ríkislögreglustjóra Norðurlandanna. Þetta var kannað í fullu samráði embættisins, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og dómsmálaráðherra. Sem betur fór lauk mótmælunum á friðsamlegum nótum og því var það sameiginleg ákvörðum þeirra sem að málinu komu að ekki væri þörf fyrir umræddar lögreglubifreiðar," segir einnig. Ríkislögreglustjóri segir einnig að meðan á mótmælendunum stóð hafi verið mikið álag á lögreglumönnum og áréttar hann að þeir hafi staðið sig undantekningarlaust vel undir gríðarlegu álagi. „Lögreglan starfaði sem ein heild undir sameiginlegu skipulagi. Enginn ágreiningur var um markmið og leiðir og náið samstarf á milli embætta um aðgerðir."
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira