Siðferðisbrestur Guðjóns - hættir á þingi fyrir Frjálslynda 6. febrúar 2009 10:41 Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins. „
Þegar menn búa við heimilisböl til lengri tíma þá endar það með því að þeir segja hingað og ekki lengra," segir Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sem hefur ákveðið gefa ekki kost á sér fyrir flokkinn í komandi þingkosningum. Jón segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formann flokksins, hafa sýnt alvarlegan siðferðisbrest. „Miðað við þær aðstæður sem eru í flokknum óska ég ekki eftir því að vera í framboði fyrir hann." Deilur, ósætti og sú staðreynt að flokkurinn geti ekki talað skýrt í mikilvægum málum er ástæðan á bak við ákvörðun Jóns. Hann ákvað á seinasta ári að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri fyrir flokkinn. Störf Jóns gerð tortryggileg Jón segist hafa viljað sjá ákveðnar breytingar gerðar á starfi flokksins og að hann hafi verið mikill áhugamaður um uppbyggingu flokksins og nýliðun. Þessi mál hafi hann rætt við Guðjón Arnar. Jón segir að síðar hafi hann orðið þess var að ákveðnir einstaklingar hafi reynt að gera störf hans tortryggileg og jafnvel skemma fyrir uppbyggingu flokksins. Jón segir að meðal þeirra sem hafi haldið uppi andstöðu við sig og rætnum nafnlausum skrifum á netinu hafi verið Helgi Helgason, fyrrverandi starfsmaður flokksins. „Ég gerði á sínum tíma kröfu um að Helgi viki en formaðurinn sá ekki ástæðu til þess. Mér finnst það vera alvarlegur siðferðisbrestur." Blendnar tilfinningar - útilokar ekki þingframboð Jón settist á þing fyrir Frjálslynda flokkinn í maí 2007. Í september á seinasta ári var hann kjörinn þingflokksformaður Frjálslynda flokksins. Áður var Jón varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á árunum 1983 til 1987. Hann var formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna 1977 til 1981.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira