Björgólfur og Sturla vörubílstjóri saman í mynd 1. júlí 2009 05:30 Helgi Felixson frumsýnir hinn 6. október en meðal viðmælenda hans í heimildarmyndinni Guð blessi Ísland eru Bjarni Ármannsson og Sturla Jónsson.
Fjöldi heimildarmynda er í vinnslu um íslenska efnahagshrunið. Fyrsta myndin er að verða klár en hún verður frumsýnd á sögulegum degi. „Þetta er alveg pottþétt dagsetning, hún gæti bara ekki verið betri,“ segir Helgi Felixson en hann frumsýnir, fyrstur allra, heimildarmynd sína um bankahrunið á Íslandi hinn 6. október, nákvæmlega ári eftir að Geir H. Haarde flutti víðfrægt ávarp til íslensku þjóðarinnar. Myndinni hefur verið gefið nafnið Guð blessi Ísland með tilvísan í ræðu Geirs. Svo skemmtilega vill til að RÚV stefnir á að frumsýna fyrstu heimildarmyndina af fimm þennan sama dag en Helgi vonast til að plús-stöðin bjargi honum fyrir horn. Helgi kafar í myndinni ekki ofan í hagfræðingakenningar er varða íslenska efnahagshrunið heldur beinir kastljósinu að mannlega hlutanum, hvernig Íslendingar upplifðu það þegar landið var við það að sogast ofan í hyldýpi þjóðargjaldþrots. Meðal þeirra sem Helgi fylgist með er Duni, lögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu sem á að halda uppi lögum og reglu en er sjálfur bæði reiður og ringlaður. Einnig koma við sögu nornin Eva Hauksdóttir og sonur hennar Haukur sem voru áberandi í búsáhaldabyltingunni auk Einars Más Guðmundssonar. Sturla Jónsson vörubílstjóri kemur töluvert fyrir í myndinni. „Og svo ræða bæði Björgólfur og Bjarni Ármannsson við mig. Þetta eru þó ekki einhverjar varnarræður heldur eru þeir bara að segja frá því hvernig þeir upplifðu þennan tíma.“ Til stóð að Jón Ásgeir Jóhannes-son yrði meðal viðmælanda en hann gekk úr skaftinu á síðustu stundu. „Hann bara hætti við en á ennþá von um að komast í síðasta klippið. Ég er að vonast til að ná honum,“ segir Helgi og bætir því við að hann sé með dúndurefni í höndunum. „Ég gæti haldið áfram með þessar sögur fram á síðasta dag.“
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira