Ólafur í Mjólku: Hyggur á framboð í Kraganum 2. febrúar 2009 12:00 Ólafur Magnússon.
Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, hyggst bjóða sig fram gegn Siv Friðleifsdóttur í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. „Ég hef ákveðið að taka slaginn," segir Ólafur aðspurður um framboð. „Ég tel að það sé kominn tími umbreytinga í Framsóknarflokknum. Menn þekkja afstöðu mína í umhverfismálum og verk mín í mjólkuriðnaði en ég hef lengi talað fyrir umbreytingu á landbúnaðarkerfinu," segir Ólafur en hann var í forsvari fyrir samtökin Sól í Hvalfirði á sínum tíma. „Ég var auðvitað í ákveðinni andstöðu við ráðandi öfl í flokknum þannig að ég tel mig vera fulltrúa breytinga í flokknum og ég held að ég geti lagt honum lið í því umbreytingastarfi sem framundan er," segir Ólafur sem segist vilja sjá prófkjör í kjördæminu. Ólafur er samvinnuskólagenginn og starfaði í ungmennafélagshreyfingunni og segist hafa verið Framsóknarmaður lengi. „En ég studdi ekki áherslur Halldórs Ásgrímssonar og félaga hans í flokknum. Ég verð að vera alveg hreinskilinn og segja að ég treysti mér ekki til þess að kjósa flokkinn í síðustu kosningum," segir Ólafur. Ólafi líst afskaplega vel á nýjan formann Framsóknarflokksins, Sigmund Davíð Gunnlaugsson. „Hann er glæsilegur fulltrúi breytinga í flokknum. Hann hefur staðið sig gríðarlega vel og hann og hans vinnubrögð lofa mjög góðu," segir Ólafur og bætir við að hann langi til að taka þátt í að skapa nýjan Framsóknarflokk. „Ég er að þessu fyrst og fremst vegna þess að ég hef áhuga á pólitík og ég er tilbúinn að fara í þennan slag ef fyrir því er hljómgrunnur," segir Ólafur Magnússon að lokum.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Sjá meira