Vörurnar rjúka út jafnóðum og þær koma 7. júlí 2009 20:11 Geir Sveinsson
Umboðssalan sem Geir Sveinsson hleypti af stokkunum ásamt nokkrum félögum sínum hefur heldur betur slegið í gegn. Fréttastofa hafði spurnir af því að vörurnar rykju út jafnóðum og þær kæmu. „Ég held að það sé engu logið þar um. Fólk hefur tekið þessu óskaplega vel," segir fyrrum handboltakappinn Geir Sveinsson sem setti á laggirnar nytjamarkað í Smáranum á dögunum. Markaðurinn ber heitið Umboðssalan en þangað getur fólk komið með muni sem það þarf að losna við og Umboðssalan annast söluna gegn ákveðinni þóknun. Eigendur ákveða verðið sjálfir. „Við ætluðum að opna þetta í rólegheitum. Það hefur ekkert gefist tækifæri til þess vegna þess að það hefur verið svo mikil traffík," segir Geir. Hann segir talsvert mikið af góðum munum koma inn til Umboðssölunnar enda sé það markmið að bjóða eingöngu hluti í góðu ásigkomulagi. „Við látum fólk spyrja sjálft sig hvort það myndi hafa áhuga á að kaupa hlutinn sem það er að selja." Geir segir að allt milli himins og jarðar sé til sölu hjá umboðssölunni nema smávara á borð við fatnað og skó. „Það eru hérna veiðivörur, hestavörur, golfvörur og húsgögn. Skíði og þess háttar. Heimilistæki erum við líka með en eftirspurnin eftir þeim er gríðarleg," segir Geir. Nánari upplýsingar um Umboðssöluna má finna hér.
Mest lesið „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Tónlist Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Lífið Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Lífið Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Lífið Girnileg pizzaloka sem þú verður að prófa! Lífið samstarf „Töluvert álag á líkama sem nálgast sextugt“ Lífið samstarf Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Lífið Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Fleiri fréttir Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Sjá meira