Kemur ekki til greina að greiða atkvæði með bónusgreiðslum 19. ágúst 2009 18:49
Formaður stjórnar lífeyrissjóðs verslunarmanna segir að lífeyrissjóðurinn muni aldrei greiða atkvæði með áætlun Straums um milljarða bónusgreiðslur til starfsmanna bankans, hún sé andsnúin hugmyndum sjóðsins. Ef áætlunin gengur eftir fær hver starfsmaður Straums 3,7 milljónir í bónusgreiðslu á mánuði næstu fimm árin. Straumur fjárfestingarbanki, sem tekinn var yfir af Fjármálaeftirlitinu, hefur að undanförnu unnið að því að ná samkomulagi við kröfuhafa um áframhaldandi starfsemi. Í rekstraráætlun sem kynnt var fyrir kröfuhöfum í byrjun ágúst, er áætlun um að starfsmenn Straums fái bónusgreiðslur í samræmi við endurheimtur á eignum bankans á næstu fimm árum. Allt að 10 milljarða króna. Það gerir 3,7 milljónir í bónusgreiðslu á mánuði á mann. Þess ber að geta að tillagan er ósamþykkt, en kemur til umræðu nýrrar stjórnar bankans að lokinni endurskipulagningu. Lífeyrissjóðir eiga 24 milljarða króna kröfu á bankann og því mikilla hagsmuna að gæta. Eiríkur Jónsson, formaður Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sagði í hádegisfréttum okkar í dag að það að tala um bónusgreiðslur sem telja í milljörðum væri eins og blaut tuska framan í þjóðina. Semja eigi um laun sem séu samboðin fólkinu í landinu. Stjórn LSR mun koma saman í næstu viku þar sem málið verður rætt. Ragnar Önundarson, formaður stjórnar lífeyrissjóðs verslunarmanna, sagði í samtali við fréttastofu í dag að bónusgreiðslurnar væru algjörlega andsnúnar hugmyndum lífeyrissjóðsins og sjóðurinn muni greiða atkvæði gegn þessari áætlun. Gera má ráð fyrir að afstaða erlendra kröfuhafa ráði niðurstöðunni á endanum, þar sem erlendar kröfur eru umfangsmeiri en innlendar hjá Straumi.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Fleiri fréttir Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins Sjá meira