Selt ríkisland verður ekki síðar þjóðlenda 11. febrúar 2009 05:30 Hjörleifur Kvaran. Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur segir dóm Héraðsdóms Suðurlands vera áfall fyrir óbyggðanefnd.
Orkuveita Reykjavíkur á fullkominn eignarrétt á því landi sem fyrirtækið keypti í kringum aldamótin síðustu úr tilteknum jörðum á Hellisheiði. Ríkið, sem átt hafði stóran hluta jarðanna, ætlaði að taka þær til baka sem þjóðlendur en Héraðsdómur Suðurlands segir það ekki standast lög. Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitunnar sem sjálfur rak málið fyrir dómi, segir fyrirtækið fagna þessari niðurstöðu dómstólsins. „Það kom auðvitað flatt upp á okkur þegar ríkisvaldið gerði kröfu um að eiga land sem það var búið að selja og ekki síður að óbyggðanefndin skyldi fallast á kröfuna. Dómurinn er visst áfall fyrir nefndina," segir Hjörleifur. Þrátt fyrir að ríkið hafi ásamt meðeigendum selt Orkuveitunni jarðapartana á Hellisheiði tók óbyggðanefnd síðar undir með fjármálaráðuneytinu og úrskurðaði að umræddar spildur væru þjóðlendur og heyrðu þar með aftur undir ríkið. Orkuveitan stefndi þá ríkinu til að fá eignarhald sitt staðfest. Landið hafði fyrirtækið keypt til jarðgufuvinnslu. Héraðsdómur Suðurlands segir að landspildurnar hafi á sínum tíma verið seldar með heimild Alþingis. Orkuveitan hafi mátt vænta þess að ríkið gerði ekki síðar kröfu um það fyrir óbyggðanefnd að hluti hins selda lands teldist til þjóðlendu. Krafa ríkisins væri ósamrýmanleg fyrri gerningi. Enn er ekki ljóst hvort ríkið óskar eftir því að bera málið undir Hæstarétt. „Ég geri ekki ráð fyrir að ríkið áfrýi þessum dómi því það hefur heldur verið að draga úr offorsi ríkisvaldsins í þjóðlendumálunum frá því sem lagt var upp með," segir Hjörleifur um mögulegt framhald málsins. Fyrir Héraðsdómi Suðurlands var hins vegar staðfestur úrskurðar óbyggðanefndar um að Selvogsafréttur og Ölfusafréttur væri þjóðlenda en ekki eignarland eins og Sveitarfélagið Ölfus hélt fram. Taldi sveitarfélagið sig með hefð hafa unnið eignarrétt á svæðinu þar sem meðal annars er hluti Bláfjalla, Heiðin há og svæði vestur af Henglinum. Meðal mannvirkja sem Ölfus hefur leigt land undir á þessu svæði eru Litla-Kaffistofan, Ármannsskálinn og námur í Jósepsdal og Lambafelli. gar@frettabladid.is
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sjá meira