Þorvaldur Davíð semur smell 2. júlí 2009 06:00 Þorvaldur Davíð sendi frá sér sumarsmell á dögunum. Fréttablaðið/Arnþór
Leikaraneminn Þorvaldur Davíð Kristjánsson er ekki við eina fjölina felldur, en hann hefur nýlega sent frá sér lagið Sumarsaga. „Ég byrjaði að læra á gítar til að kúpla mig út úr leiklistinni eftir erfiðan skóladag. Það var það sem ég gerði í vetur, æfði mig á kassagítar, til að verða löggildur í útilegurnar í sumar.“ Lagið fjallar um sumarkvöld í Reykjavík. Er það samið í heimþrá? „Eiginlega. Þetta var eftir að ég var búinn að melta efnahagshrunið og var að reyna að finna jákvæðu hliðarnar á Íslandi. Ég var búinn að sýna seinustu sýninguna mína í skólanum og var hugsað heim. Hvað gerir maður þegar maður kemur til Íslands? Jú maður fer niður í bæ, hittir fólk, fær sér kannski nokkra stóra og labbar um miðbæinn. Þaðan kom þessi litla sumarsaga. Svo fylgdu hljómarnir bara með.“ Þorvaldur fékk aðstoð vina við upptökur. Sólmundur Hólm og Hannes Þórður Þorvaldsson spiluðu með og Þorvaldur Bjarni sá um hljóðblöndun. Lagið kemur út á Pottþétt plötunni Sumar á Íslandi seinna í sumar. Hyggst hann spila opinberlega? „Ef einhver vill að ég komi og spili þá geri ég það. Maður tekur þetta í útilegunum. Svo er bara vonandi að fólk pikki upp gripinn og maður heyri þetta úti um allt um verslunarmannahelgina.“ Hann segir lítið mál að læra á gítar. „Sérstaklega ef maður tengir þetta sagnahefðinni. Það var leiðin inn í þetta fyrir mig. Þú ert bara að segja sögu og svo lætur þú hljómana fylgja einhvern veginn með.“ Ekki er loku fyrir það skotið að fleiri lög eftir Þorvald líti dagsins ljós. „Ef fólk fílar lagið og vill meira þá bý ég bara til fleiri lög. Ég á nokkur í skúffunni.“
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira