Skoða framtíðarskipulag kirkjugarða 7. maí 2009 08:00 Hjalti Zóphóníasson Skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu segir að þangað berist fimm til tíu beiðnir á ári um að flytja látið fólk í nýjar grafir.
Hjalti Zóphóníasson, skrifstofustjóri kirkjumáladeildar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, segir að rætt verði við forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkur vegna skipulagningar á kirkjugörðum í framtíðinni. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær og síðastliðinn föstudag eru sumir aðstandendur óánægðir með að látnir ættingjar þeirra hvíli í gröf þar sem legsteini eru ætlaður staður til fóta. Í blaðinu í gær var haft eftir Þórsteini Ragnarssyni, forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkur, að skipulag garðanna hér væri í samræmi við garða í borgum Evrópu. „Við tölum ábyggilega við Þórstein í framhaldinu með skipulagningu nýrra garða í huga,“ segir Hjalti. Sumir aðstandendur hafa íhugað að óska eftir leyfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins til að færa kistur í nýjar grafir svo legsteinar geti verið við höfðalag. Hjalti segir að á ári hverju hafi borist fimm til tíu beiðnir um að fá að færa kistur. Frá því hann hóf störf í ráðuneytinu 1994 hafi engin beiðni tengst því hvernig grafirnar snúi. Heimild sé gefin eftir umsögn frá héraðslækni og biskupi Íslands eða yfirmanni viðkomandi trúarhóps. Oftast sé um að ræða sameiningu ættingja. „Þá hafa þau kannski verið skilin, foreldrarnir, og börnin vilja endilega að þau hvíli saman og það fellst einhver annar á það,“ nefnir Hjalti sem dæmi. - gar
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Fleiri fréttir Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Sjá meira