Lilja Mósesdóttir sat hjá við aðra umræðu 29. maí 2009 12:22 Lilja Mósesdóttir. MYND/Pjetur
Athygli vakti við Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, studdi ekki skattahækkanafrumvörp ríkisstjórnarinnar við aðra umræðu í gærkvöldi. Þetta gerði Lilja til að knýja á um að málið yrði ekki afgreitt án þess að upplýsingar lægju fyrir um áhrif hækkananna á ýmsa bótaflokka ríkissjóðs og varð þetta til þess að fulltrúar fjármálaráðuneytis voru ræstir út með hraði. Lilja studdi málið að lokum við þriðju og síðustu atkvæðagreiðslu en hjáseta hennar við aðra atkvæðagreiðslu vakti upp spurningar. Þannig sáu aðrir þingmenn hvar Steingrímur J. Sigfússon fjárrmálaráðherra og formaður Vinstri grænna tók Lilju afsíðis og virtist mönnum sem hann væri að tukta hana til fyrir uppreisnina. Lilja segir svo ekki hafa verið heldur hafi hann viljað fá útskýringar á afstöðu hennar. Lilja kveðst hafa setið hjá við aðra atkvæðagreiðslu þar sem hún hefði talið nauðsynlegt að fyrir lægju upplýsingar um hvaða áhrif aðgerðirnar hefðu á ýmsa bótaflokka ríkissjóðs, svo sem hvort þær myndu leiða til hækkunar á persónuafslætti. Kveðst Lilja sem hagfræðingur vilja hafa slíka hluti skýra. Afstaða hennar varð til þess að starfsmenn fjármálaráðuneytis voru ræstir út með hraði til að koma til fundar við efnahags og skattanefnd og gátu þeir meðal annars upplýst að verðlagsáhrif aðgerðanna í gærkvöldi leiða til þess að hækka þarf persónuafslátt um næstu áramót að óbreyttu, sem leiðir til 500 milljóna króna útgjaldaauka ríkisins. Lilja var sátt við þessa afgreiðslu og greiddi að lokum atkvæði með aðgerðunum.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjá meira