Innlent

Lilja Mósesdóttir sat hjá við aðra umræðu

Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir. MYND/Pjetur

Athygli vakti við Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, studdi ekki skattahækkanafrumvörp ríkisstjórnarinnar við aðra umræðu í gærkvöldi. Þetta gerði Lilja til að knýja á um að málið yrði ekki afgreitt án þess að upplýsingar lægju fyrir um áhrif hækkananna á ýmsa bótaflokka ríkissjóðs og varð þetta til þess að fulltrúar fjármálaráðuneytis voru ræstir út með hraði.

Lilja studdi málið að lokum við þriðju og síðustu atkvæðagreiðslu en hjáseta hennar við aðra atkvæðagreiðslu vakti upp spurningar. Þannig sáu aðrir þingmenn hvar Steingrímur J. Sigfússon fjárrmálaráðherra og formaður Vinstri grænna tók Lilju afsíðis og virtist mönnum sem hann væri að tukta hana til fyrir uppreisnina.

Lilja segir svo ekki hafa verið heldur hafi hann viljað fá útskýringar á afstöðu hennar. Lilja kveðst hafa setið hjá við aðra atkvæðagreiðslu þar sem hún hefði talið nauðsynlegt að fyrir lægju upplýsingar um hvaða áhrif aðgerðirnar hefðu á ýmsa bótaflokka ríkissjóðs, svo sem hvort þær myndu leiða til hækkunar á persónuafslætti.

Kveðst Lilja sem hagfræðingur vilja hafa slíka hluti skýra. Afstaða hennar varð til þess að starfsmenn fjármálaráðuneytis voru ræstir út með hraði til að koma til fundar við efnahags og skattanefnd og gátu þeir meðal annars upplýst að verðlagsáhrif aðgerðanna í gærkvöldi leiða til þess að hækka þarf persónuafslátt um næstu áramót að óbreyttu, sem leiðir til 500 milljóna króna útgjaldaauka ríkisins. Lilja var sátt við þessa afgreiðslu og greiddi að lokum atkvæði með aðgerðunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×