Heilbrigðisráðherra þarf að skera niður um 6,7 milljarða 8. janúar 2009 21:52
Heilbrigðisráðherra þarf að spara, hagræða og skera niður fyrir 6,7 milljarða á þessu ári. Mikil ólga er hjá íbúum og bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði með framgöngu heilbrigðisráðherra varðandi Sankti Jósefsspítala og í Vestmannaeyjum vilja bæjaryfirvöld taka yfir rekstur sjúkrahús bæjarins. Heilbrigðisráðherra bíður ærið verkefni við að hefta fjárútlát í heilbrigðiskerfinu á þessu ári. Honum er ætlað að draga úr útgjöldum upp á 6,7 milljarða miðað við fyrstu áætlanir fjárlaga þessa árs. Þar á t.d. að hagræð með því að lækka lyfjakostnað um milljarð, sjúkrahúsin á höfuðborgarsvæðinu eiga að hagræða um 2,6 milljarða og öldrunarstofnanir um 1,4 milljarða svo eitthvað sé nefnt. Þá gera fjárlög ráð fyrir að nýrri gjaldtöku upp á 360 milljónir króna. Aldraðir og öryrkjar greiði þrjú þúsund krónur en aðir sex þúsund í innritunargjöld á sjúkrahús, sem skilar 100 milljónum. Þá vantar enn 260 milljónir sem ekki er búið að ákveða hvar verða innheimtar. Eins og er, er ákvörðun ráðherra um að breyta St. Jósefsspítala algerlega í öldrunarstofnun og flytja aðra starfsemi spítalans á Landspítalann og í Reykjanesbæ, einna umdeildust og hefur verið boðað til borgarafundar um málið á laugardag. Lúðvík segir að vel megi vera að það þurfi að hagræða en áætlanir heilbrigðisráðherra gangi út á meira en það. Þarna sé ætlunin að færa alla starfsemina út af spítalanum. Og í Vestmannaeyjum er óánægjan ekki minni þar sem sameina á spítala bæjarins Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Bæjarstjórinn segir bæjaryfirvöld treysta sér til að reka spítalann og ná fram hagræðingu í rekstri í samvinnu við ríkið. Hægt sé að samræma þjónustu spítalans annarri mikilvægri þjónustu í bænum eins og félagsþjónustunni.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Sjá meira