Ný plötuútgáfa stelur senunni 14. júlí 2009 05:00 Ó borg mín borg Steinþór og félagar hans hjá Borginni fóstra íslenskt tónlistarlíf. Fréttablaðið/Valli
Steinþór Helgi Arnsteinsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, betur þekktur sem Kiddi úr Hjálmum og Baldvin Esra Einarsson hafa stofnað nýtt plötufyrirtæki sem ber nafnið Hljómplötuútgáfan Borgin. „Þetta byrjaði þannig að Kiddi vildi fá að leika sér meira, fá meira listrænt frelsi. Hann fékk Baldvin Esra frá Kimi Records til að aðstoða sig við dreifingu og svo var ég fenginn til að vera starfsmaður fyrirtækisins," segir Steinþór Helgi um nýju plötuútgáfuna. Unnið hefur verið í nokkra mánuði í leynum en á morgun verður haldinn blaðamannafundur þar sem ljóstrað verður upp hvaða útgáfur eru á döfinni hjá Borginni. Þá verða haldnir tónleikar með Sigríði Thorlacius og hip hop hljómsveitinni Fallegum mönnum á Batteríinu annað kvöld. Fyrstu plöturnar sem gefnar verða út hjá Borginni eru ný plata Egils Sæbjörnssonar, „live" plata með Megasi og plata Baggalúts, Sólskinið í Dakota, en Megas og Gylfi Ægisson koma þar við sögu. Í kjölfarið fylgja svo Hjálmar „og vonandi Hjaltalín og Sigríður Thorlacius, ef allt gengur að óskum," svo fátt eitt sé nefnt. Steinþór segir Borgina engri líka. „Það á eftir að koma fólki á óvart hvað við verðum með stóran og breiðan hóp tónlistarmanna." Hann tekur fram að fyrirtækið sé ekki stofnað vegna ósættis við önnur plötufyrirtæki. „Þetta er fyrst og fremst gert með hagsmuni tónlistarmanna að leiðarljósi. Við hlökkum bara til að takast á við miklar áskoranir á þessum síðustu og verstu tímum." Þeir eru bjartsýnir þrátt fyrir að plötusala dragist saman í heiminum. „Við erum hvergi bangnir og vitum að íslensk tónlist heldur áfram að seljast. Við erum ekki að gera þetta til að græða fullt af peningum heldur erum við fyrst og fremst að fóstra íslenskt tónlistarlíf." kbs@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira