Innlent

Fjölskylda Ragnars ekki enn heyrt í honum

Fangelsin í Brasilíu eru með þeim verstu í heiminum segir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International. Hún segir aðbúnaðinn ómannúðlegan og niðurlægjandi. Fjölskylda Ragnars Erlings sem var handtekinn þar í landi fyrir tæpri viku, hefur enn ekki náð sambandi við hann.

 

Amnesty International hefur í mörg ár haft miklar áhyggjur af aðbúnaði fanga í brasilískum fangelsum. Fangelsin eru yfirfull auk þess sem þau eru undirmönnuð af ófaglærðu starfsfólki. Gæsluvarðhaldsfangelsið þar sem Ragnar Erling Hermannsson er vistaður komst t.a.m. í fréttirnar á síðasta ári þegar 51 fangi slapp úr vistinni. Þann dag voru fimm fangaverðir á vakt. Fangarnir voru aftur á móti 987 talsins en fangelsið er byggt fyrir 311 einstaklinga. Ragnar lýsti aðbúnaðinum í viðtali við fréttastofu í gær þar sem hann sagðist deila klefa með 14 föngum. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International segir fangelsin í Brasilíu þau verstu í heiminum. Fanganna bíði tvöfaldur dómur þar aðbúnaðurinn er ómannúðlegur og niðurlægjandi.

Há glæpatíðni er í Brasilíu og annar réttarkerfið ekki álaginu. Jóhanna telur líklegt að Ragnar þurfi að bíða einhvern tíma áður en mál hans verður tekið fyrir en dæmi eru um að menn þurfi að bíða mánuðum og jafnvel árum saman áður en mál þeirra séu tekin til dómsferðar. Afplánun hér á landi kemur ekki til tals fyrr en Ragnar hefur hlotið sinn dóm í Brasilíu Heyra mátti á Ragnari að hann var óttasleginn um framhaldið. "Ég á eftir að deyja hérna", sagði Ragnar.

Í samtali við fréttastofu sagði faðir Ragnars að fjölskyldan hafi enn ekki náð sambandi við hann. Það hafi verið skelfilegt að heyra í honum í fréttum Stöðvar 2 í gær. Ragnar fékk í dag heimsókn frá ræðismanni frá Svíþjóð sem færði honum nauðþurftir. Þá hefur hann fengið læknisaðstoð við matareitruninni. Fjölskyldan vill skila kæru þakklæti til allra þeirra sem hafa haft samband og lýst yfir stuðningi.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×