Nýr veðurgagnagrunnur tekinn í notkun 6. október 2009 16:51 Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra opnar í dag nýtt vefsvæði sem hlotið hefur nafnið Gagnatorg veðurupplýsinga. Á Gagnatorginu má með einföldum hætti nálgast allar veðurathuganir Veðurstofu Íslands sem skráðar eru í gagnagrunna hennar. Þessar athuganir taka til meira en 200 veðurstöðva víðsvegar um landið og ná í sumum tilvikum allt aftur til ársins 1931 að því er segir í tilkynningu en það eru fyrirtækin Reiknistofa í veðurfræði / Belgingur og DataMarket sem standa að þróun og rekstri Gagnatorgsins. „Gagnatorgið gerir fræðimönnum, námsmönnum og áhugamönnum um veðurfar mun hægara um vik að nálgast þessar upplýsingar en hingað til hefur verið og við vonumst til að sjá mun stærri hóp vinna með og nýta þessi gögn en áður," segir ennfremur. „Þannig sjáum við til dæmis fyrir okkur að nemendur muni nýta gagnatorgið til að fræðast um veðurfar í sinni heimabyggð og þróun þess undanfarna áratugi. Með tímanum stendur jafnframt til að nemendur og aðrir áhugamenn um veðurathuganir geti deilt sínum eigin mælingum með öðrum með hjálp Gagnatorgsins." Notendur vefsins geta valið veðurstöðvar á korti eða flett þeim upp í lista, hakað við þær mælingar sem þeir hafa áhuga á að sjá og kallað þær fram fyrir valið tímabil. Gögnin má svo skoða hvort heldur er sem töflu eða á myndriti eða hala þeim niður til frekari úrvinnslu til dæmis í töflureikni líkt og Excel. Gagnatorgið má nálgast á slóðinni vedur.datamarket.net.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Sjá meira