Tvíhöfði svarar krítík fullum hálsi 24. júní 2009 05:00 tvíhöfði á velmektarárum sínum Borið hefur á kvörtunum vegna þess að á „nýjum“ diski þeirra sé endurtekið efni en Sigurjón segir þetta safndisk og ýmislegt þar að finna sem hefur verið ófáanlegt með öllu lengi. „
Ótrúlegt að láta Tvíhöfða féfletta sig!“ „I want my money back.“ „Ég hef heyrt þetta allt áður. Sama draslið.“ Svo hljóða umkvartanir neytenda sem leitað hafa til Fréttablaðsins vegna hins „nýja“ tvöfalda disks „Gubbar af gleði“ sem útvarpstvíeykið Tvíhöfði sendi nýverið frá sér – þeirra fimmti. Þar er að finna atriði úr útvarpsþáttum þeirra og lög. Sigurjón Kjartansson svarar fullum hálsi. „Eymingja karlarnir. Annar diskurinn er endurútgefinn. Hinn inniheldur efni sem aldrei hefur komið út áður í þessu formi.“ Sigurjóni er fyrirmunað að skilja hvernig þessar upplýsingar hafa farið fram hjá þeim sem nú kvarta. „Þetta er safndiskur. Ég ætla ekki að elta ólar við svona tuð. En tek það þó fram að þetta efni hefur verið ófáanlegt lengi. Menn skulu þá bara væla yfir safndiskum frá Brimkló. Bubbi sendi frá sér stóran „best of pakka“ fyrir nokkru og fleiri góðir listamenn. Bob Dylan hefur gefið út margar „best of plötur“ og enginn vælir undan því. Menn verða bara að bíta í þetta súra epli. Það er ekki verið að snuða neinn.“ Tvíhöfðarnir Sigurjón og Jón Gnarr hafa komið fram í nokkrum viðtölum til að fylgja diski sínum eftir og þá hafa þau gjarnan snúist um þá meintu ósvinnu að þeir séu ekki lengur í útvarpi. Mogginn tók svo undir þann söng í klausu en spurður hvort Tvíhöfðinn sé að reyna að grenja sig í útvarp aftur – skrifar Sigurjón það alfarið á félaga sinn. „Jón notar hvert einasta tækifæri til að gráta það að Tvíhöfðinn sé ekki lengur í útvarpi. Ég get ekki sagt að það sé draumurinn hjá mér að vera á hverjum morgni í svona gríni þó ég viti að sannarlega er þörf á því á þessum síðustu og verstu tímum. Ég fórnaði einhverjum 7 árum ævi minnar í þetta, vaknandi fyrir allar aldir til að skemmta fólki eldsnemma á leið til vinnu. En það er nú svo að maður kemur yfirleitt ekki í manns stað í jafn fámennu landi.“- jbg
Mest lesið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Rassaumhirða karla í sókn Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira