Ferill nátengdur feðginum 16. október 2009 08:00 Björn Thors fetar í fótspor Flosa Ólafssonar í leikritinu Brennuvargarnir. Anna, dóttir Flosa, kom Birni upp á bragðið í leiklistinni.fréttablaðið/gva „
Flosi er algjör hetja,“ segir leikarinn Björn Thors sem fetar í fótspor Flosa Ólafssonar í leikritinu Brennuvargar sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Fyrir um fimmtíu árum fór Flosi með hlutverk annars af tveimur brennuvörgum leikritsins, Jósef Schmitz, þegar það var sýnt við góðar undirtektir í Tjarnarbíói. Núna er komið að Birni að spreyta sig á sama hlutverki. „Ég geri mitt besta,“ segir Björn, sem hefur alla tíð verið mikill aðdáandi Flosa. „Ég sá hann ekki mikið á sviði en ég er þeim mun meiri aðdáandi hans úr sjónvarpi og kvikmyndum.“ Svo skemmtilega vill til að Anna, dóttir Flosa, kom Birni upp á bragðið í leiklistinni þegar hann var í tíunda bekk í Hlíðaskóla. Hún kennir mynd- og leiklist í skólanum og árið 1994 var settur upp söngleikur sem var saminn af nemendunum sjálfum. Söngleikurinn heppnaðist gríðarvel og Björn sýndi frábær tilþrif. Síðan hefur hann verið Önnu afar þakklátur eins og kom berlega í ljós í ræðu hans við afhendingu Grímuverðlaunanna í vor, sem hann hlaut fyrir frammistöðu sína í Vestrinu eina. Anna segir að hrósið sem hún fékk hafi komið sér algjörlega í opna skjöldu, hvað þá í beinni útsendingu í sjónvarpinu. „Ég bara sat heima í stofu eins og aðrir og horfði á þessa verðlaunaafhendingu. Þetta kom mér gjörsamlega á óvart,“ segir Anna. „Grunnskólakennarar eru kannski ekkert mikið að fá svona hrós. Þetta er náttúrulega ómetanleg hvatning fyrir fólk sem vinnur í þessum geira.“ Hún segist hafa fylgst vel með Birni eftir að hann útskrifaðist úr Hlíðaskóla. „Hann var toppnemandi og mjög listhneigður. Maður sá hvert stefndi hjá honum.“ Flosi, sem verður viðstaddur frumsýninguna í kvöld, er einnig hæstánægður með Björn sem eftirmann sinn í Brennuvörgunum. „Ég átti að líta út fyrir að vera kraftajötunn eða heljarmenni,“ segir hann um hlutverk sitt fyrir hálfri öld. „Mér sýnist hann nú ekki vera eins íturvaxinn og ég, þó svo að hann sé náttúrulega hærri og grennri og í alla staði huggulegri en ég var. En ég efast ekki um að hlutverk þessa illmennis sé í afar góðum höndum.“ Hlutverk Björns í Fangavaktinni hefur vakið mikla athygli að undanförnu og Flosi er einn þeirra sem hafa hrifist með. „Það liggur við að í elli minni hafi ég tekið gleði mína aftur. Mér finnst hann svo frábærlega góður að ég hef varla séð hlægilegri frammistöðu á ævinni og eru þó hinir dágóðir. Mér finnst hann Pétur einhver mest sannfærandi lúser sem ég hef séð á ævinni.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira