Innlent

Ryk bundið í nótt

Allar helstu umferðargötur í Reykjavík voru rykbundnar í nótt til að kom í veg fyrir svifryksmengun. Þetta var gert samkvæmt viðbragðsáætlun borgarinnar um loftgæði en í gær mældist styrkur svifryks við heilsuverndarmörk. Talið er að rykbinding geti dregið úr menguninni um allt að 35 prósent. Spáð er köldu lofti, logni og þurrviðri, en við þær aðstæður myndast svifryk einna helst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×