Westlife á leið til Íslands 14. október 2009 09:00 Strákarnir í Westlife eru væntanlegir til Íslands um helgina til að taka upp myndband við nýtt lag. Sveitin er ein sú vinsælasta á Bretlandi. NOrdicPhotos/afp „
Þeir ætla að hafa svona snjó-áherslur í myndbandinu, jökla og ísjaka,“ segir Leifur B. Dagfinnsson hjá framleiðslufyrirtækinu True North. Írska strákasveitin Westlife er væntanleg til landsins um helgina í þeim erindagjörðum að taka upp myndband við nýtt lag. True North mun sjá um tökurnar hér en Leifur segir ekki ljóst hversu stórt myndbandið sé í sniðum, að öllum líkindum verði það þó tekið upp í kringum Jökulsárlón þar sem fjölmargar erlendar auglýsingar, myndbönd og kvikmyndir hafa verið gerðar. Karlarnir í Westlife hafa vafalítið ekki gert sér grein fyrir því að þeir gætu ekki hafa valið sér betri tímasetningu því í dag hefst tónlistarhátíðin Airwaves og stendur fram yfir helgi. Helstu skemmtistaðir borgarinnar verða því þéttsetnir af fólki sem hefur reyndar annan tónlistarsmekk en Westlife stendur fyrir. Þeir ættu þó að geta fundið sér tíma til að kíkja aðeins á tónleikahaldið þótt Leifur segi að heimsóknin muni verða stutt. „Þeir koma degi áður en tökurnar hefjast og fara strax á sunnudagsmorgun.“ Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins munu Westlife-piltarnir ætla að gista á 101 Hóteli í miðborg Reykjavíkur, eins og flestar þær stórstjörnur sem hingað koma. Og þeir fjölmörgu sem héldu að Westlife væri búin að gefa upp öndina þá er það alls ekki raunin. Þeir Nicky Byrne, Kian Egan, Mark Feehily og Shane Filan, sem skipa sveitina, eru nefnilega í fullu fjöri. Sveitin hefur slegið fleiri met en margan grunar, hún er í þriðja sæti yfir þá tónlistarmenn á Bretlandi sem hafa komið flestum smáskífum á toppinn þar í landi, eða alls fjórtán. Aðeins Elvis Presley og Bítlarnir státa af betri árangri. Ný plata Westlife er væntanleg 30. nóvember og hyggst sveitin fylgja henni eftir með miklu tónleikaferðalagi. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira