Sjómaður vill annað sæti VG í Norðausturkjördæmi 5. febrúar 2009 11:02 Björn Valur Gíslason
Sjómaðurinn Björn Valur Gíslason hefurákveðið að taka þátt í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðausturkjördæmi og stefnir á að skipa 2.-3. sæti lista flokksins fyrir Alþingiskosningarirnar 25. apríl nk. Jafnframt lýsir hann stuðningi við formann flokksins, Steingrím J. Sigfússon, í fyrsta sæti framboðslistans. Þetta kemur fram í tilkynnginu frá Birni. Í stuttu æviágripi kemur fram að Björn sé fæddur í Ólafsfirði 20. sept. 1959 og hafi búið þar lengstaf. Síðustu árin hefur hann haft búsetu á Akureyri. Frá árinu 1975 hefur Björn Valur haft sjómennsku að aðalstarfi. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1984 og hefur starfað sem stýrimaður og skipstjóri á bátum og togurum. Björn Valur er nú skipstjóri á frystitogaranum Kleifabergi, sem Brim hf. gerir út. Vorið 2006 lauk hann kennsluréttindanámi frá Háskólanum á Akureyri sem framhaldsskólakennari. Björn Valur er einn af stofnendum VG og hefur starfað í flokknum frá stofnun hans. Á sínum tíma sat hann á Alþingi fyrir Alþýðubandalagið sem varamaður Steingríms J. Sigfússonar. Við síðustu Alþingiskosningar skipaði Björn Valur þriðja sætið á framboðslista VG í Norðausturkjördæmi og hefur sem fyrsti varamaður tekið nokkrum sinnum sæti á Alþingi á yfirstandandi kjörtímabili fyrir Steingrím J. Sigfússon og Þuríði Bachman. Björn Valur var bæjarfulltrúi Vinstrimanna og óháðra og nefndarmaður í ýmsum nefndum fyrir Ólafsfjarðarbæ á árunum 1986-1998. Af öðrum trúnaðarstörfum má nefna setu í stjórn Skipstjóra- og stýrimannafélags Norðlendinga. Þá má nefna að hann hefur verið einn af meðlimum hinnar landsþekktu hljómsveitar Roðlaust og beinlaust. Björn Valur hefur lagt fram fjölmörg mál á Alþingi þegar hann hefur setið þar sem varamaður. Hann hefur verið virkur í starfi VG í Norðausturkjördæmi og á landsvísu og unnið m.a. að stefnumótun flokksins í atvinnumálum. „Ég legg áherslu á að grunnatvinnuvegunum, sjávarútvegi og landbúnaði ásamt ferðaþjónustunni, verði skapað eðlilegt rekstrarumhverfi, enda munum við þurfa á þessum greinum að halda til þess að reisa efnahag landsins úr rústum efnahagshrunsins. Þá vil ég leggja mikla áherslu á að grunnskólar landsins verði varðir sem mest fyrir þeim samdrætti sem efnahagshrunið hefur leitt til og tryggja verður félagslega þætti skólastarfsins. Einnig tel ég grundvallaratriði að allar sparnaðaraðgerðir og breytingar í rekstri félags-, mennta- og heilbrigðiskerfisins verði unnar í samráði við stjórnendur og starfsfólk viðkomandi stofnana en ekki í andstöðu við það eins og hingað til," segir Björgvin í tilkynningunni. Björn Valur er kvæntur Þuríði Lilju Rósenbergsdóttur og eiga þau saman þrjár dætur; Sigurveigu Petru 28 ára, Berglindi Hörpu 23 ára og Kötlu Hrund 18 ára. Fyrir átti Björn Valur einn son, sem nú er látinn.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira