Sársaukafullar aðgerðir fram undan 2. júní 2009 06:00 Ljóst er að almenningur mun finna fyrir þeim sparnaðar- og tekjumyndunaraðgerðum sem fram undan eru. Stoppa þarf upp í gríðarlega stór göt í fjárlögum sem ekki verður gert án fórna.FRÉTTABLAÐIÐ/gva
Á næsta hálfa ári á að draga úr fjárlagahallanum um tuttugu milljarða króna. Það er aðeins byrjunin, því rætt er um að alls þurfi að stoppa í 170 milljarða króna gat. Umræða síðustu mánaða hefur gert flesta ónæma fyrir háum upphæðum og er því ekki úr vegi að setja tuttugu milljarða í samhengi við útgjöld ríkisins. Heildarfjárlög ársins 2009 nema 556 milljörðum króna. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu voru samkvæmt fjárlögum á þessu ári ætlaðir 23,5 milljarðar króna. Stærsti útgjaldaliður þess er Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með 3,2 milljarða og því næst Landhelgisgæslan með 2,7 milljarða. Landspítalinn er með 33 milljarða króna framlag á fjárlögum þessa árs og 28,2 milljarðar fara í sjúkratryggingar, en þetta eru langhæstu útgjaldaliðir heilbrigðisráðuneytisins. Jóhanna Sigurðardóttir hefur sagt að ekki verði gengið að þeim verst settu í niðurskurðinum, þannig að óljóst er hve mikið er hægt að spara í því ráðuneyti. Lífeyristryggingar nema um 55 milljörðum króna á árinu, en breytingar á þeim eru vandkvæðum bundnar. Í atvinnuleysistryggingasjóð voru ætlaðir 17,7 milljarðar króna, en ljóst er að viðbótarframlag þarf þar. Sjóðurinn verður uppurinn í október eða nóvember, samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun. Fæðingarorlof kosta ríkið 10,6 milljarða króna á ári og barnabætur 10,1 milljarð. 7,8 milljarðar fara í vaxtabætur. Þá má geta þess að öll samgönguverkefni ársins 2009 samtals kosta 31,4 milljarða samkvæmt fjárlögunum. Allt sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið fær samkvæmt fjárlögum 17,5 milljarða króna. Hæstu greiðslur þar eru vegna mjólkurframleiðslu, 5,6 milljarðar, og sauðfjárframleiðslu, 4,1 milljarður. Launagreiðslur hins opinbera nema um 124 milljörðum króna, að lífeyrissjóðsgreiðslum meðtöldum. Ljóst má vera að til að spara tuttugu milljarða á hálfu ári, að ekki sé nú talað um 170 milljarða, verður að hrófla við þeim greiðslum. Launafólk í almenna geiranum hefur margt hvert tekið á sig fimm til tíu prósenta launaskerðingu, eða jafnvel meira. Nú má búast við að komið sé að opinberum starfsmönnum.kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Fleiri fréttir Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Sjá meira