Innlent

Skúli vill þriðja sætið

Frambjóðandanum Skúla Helgasyni er margt til lista lagt.
Frambjóðandanum Skúla Helgasyni er margt til lista lagt.
Fyrrum framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar, Skúli Helgason hyggst bjóða sig fram í þriðja sætið á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þá ákvörðun tók hann í ljósi þess að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gefur ekki kost á sér lengur til Alþingis.

Í yfirlýsingu sem Skúli sendi frá sér stendur:

Ég hef ákveðið að svara hvatningu félaga minna um að óska eftir stuðningi í 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í prófkjörinu sem haldið er í þessari viku. Með yfirlýsingu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að hún dragi sig í hlé frá stjórnmálum hafa forsendur breyst og í ljósi þess vil ég svara kalli kjósenda um endurnýjun með því að gefa kost á mér í 3. sæti listans.

Virðingarfyllst, Skúli Helgason.

Þá hefur Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félags- og tryggingarmálaráðherra ákveðið að sækjast einnig eftir þriðja sætinu. Í tilkynningu frá henni segir að í ljósi breyttra aðstæðna hafi hún nú ákveðið að sækjast eftir umræddu sæti, en hún sóttist eftir fjórða sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×