Innlent

Halda prófkjör um miðjan mars

Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, fundaði með flokkssystkinum sínum í morgun.
Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, fundaði með flokkssystkinum sínum í morgun.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík halda prófkjör dagana þrettánda og fjórtánda mars næstkomandi vegna uppröðunar á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir alþingiskosningarnar vorið 2009. Þetta var ákveðið á fundi Varðar - Fulltrúaráðsins í Reykjavík, sem fram fór í Valhöll nú í morgun. Á fundinum flutti Geir Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins jafnframt ræðu. Landsfundur flokksins verður svo haldinn 26. - 29. mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×