Séra Gunnari boðnar milljónir fyrir að hætta 28. október 2009 18:29
Séra Gunnar Björnsson íhugar nú rúmlega fimmtán milljóna króna starfslokasamning sem biskup Íslands bauð honum. Samningurinn er til tæplega þriggja ára og felur í sér að Sr. Gunnar þyrfti að hætta preststörfum við undirritun. Séra Gunnar Björnsson var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum úr söfnuði sínum á Selfossi. Málið fór fyrir héraðsdóm og Hæstarétt þar sem hann var sýknaður. Gunnar hefur undanfarin tvö ár verið í leyfi frá störfum vegna málsins. Í bréfi sem fréttastofa hefur undir höndum frá biskupi til Gunnars þann 15. október sl. kemur fram að biskup hafi boðið honum fjóra kosti. Í fyrsta lagi starfslokasamning. Hann fengi þá laun út skipunartímann sem rennur út árið 2012. Heildarupphæðin er því 15,5 milljónir króna þar sem Gunnar er með um hálfa milljón í grunnlaun á mánuði. Auk þess fengi hann greiddan áfallinn lögmannskostnað. Tæki hann þessu boði yrði hann að hætta preststörfum um leið. Þá var Gunnari einnig gefinn kostur á að fara í leyfi, taka við prestakallinu í stuttan tíma en segja því lausu samhliða eða verða fluttur til í starfi. Þessum kostum hafnaði Sr. Gunnar og í kjölfarið tilkynnti biskup að til stæði að færa hann til í starfi. Hann myndi gegna embætti sérþjónustuprests á Biskupsstofu og væri frjálst að sinna því starfi frá heimili sínu. Gunnar mótmælti þessu og sagðist meðal annars ætla að sækja mál sitt fyrir dómstólum. Samkvæmt heimildum fréttastofu standa hinir kostirnir Sr. Gunnari enn til boða þrátt fyrir að hann hafi hafnað þeim og mun hann nú vera að skoða stöðu sína, meðal annars með starfslokasamning í huga. Gunnar vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira