Innlent

Um 48% íslenskra heimila eiga flatskjá

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tölvur eru á 92% íslenskra heimila og 90% heimila eru með nettengingu, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Hagstofunnar. Helmingur íslenskra heimila er með tvö sjónvarpstæki eða fleiri og 48% eru með flatskjá. Nær öll nettengd heimili eru með háhraðatengingu, eða 97%.

Um 93% landsmanna á aldrinum 16-74 ára höfðu notað tölvu og netið síðustu þrjá mánuði fyrir rannsóknina. Níu af hverjum tíu netnotendum senda tölvupóst og 78% lesa vefútgáfur dagblaða eða tímarita. Þrír af hverjum fjórum netnotendum nota netið til að leita upplýsinga á heimasíðum opinberra aðila og mikill meirihluti þeirra segir þessa upplýsingaleit ganga vel.

Hlutfall þeirra sem versla á netinu lækkar milli ára í fyrsta skipti síðan mælingar hófust árið 2002. Þeir sem versla á netinu kaupa síður farmiða, gistingu og aðra ferðatengda þjónustu en fyrri ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×