Innlent

Fjórum sinnum stöðvaður með amfetamín í blóði eða bíl

Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að keyra bifreið undir áhrifum fíkniefna, eða með fíkniefni í fórum sínum, sviptur ökuréttindum fjórum sinnum á hálfu ári. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefur út ákæruna en málið var þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Í október árið 2007 var maðurinn stöðvaður til móts við Mentaskólann við Sund og mældist amfetamín í blóði 250 ng/ml. Síðan var hann stöðvaður á Bústaðavegi tveimur mánuðum síðar og hafði þá í vörslum sínum 7,72 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit á ákærða.

Hann var síðan með útrunnið ökuskírteini og 470 ng/ml af amfetamíni í blóði þegar hann var stöðvaður við Jörfabakka í Reykjavík í mars 2008. Hann var síðan stöðvaður við Jaðarsel í apríl með amfetamín í blóði.

Þess er krafist að maðurinn verð dæmdur til refsingar auk greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig er farið fram á að hann verði sviptir ökurétti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×