Lífið

Gangur á silfurgel-drengjum

Björgvin Páll Gústavsson segir sölu á gelinu vera samkvæmt áætlun en búið er að keyra út sjö þúsund hárgelsdollur.
Björgvin Páll Gústavsson segir sölu á gelinu vera samkvæmt áætlun en búið er að keyra út sjö þúsund hárgelsdollur.

„Þetta gengur mjög vel, salan er alveg í samræmi við það sem við mátti búast. Við erum reyndar mjög bjartsýnir menn og því er þetta bara mjög gott,“ segir Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmaður í handbolta og hárgelsfrömuður.

Sala á hárgeli hans og Loga Geirssonar hefur farið vel af stað. Töluverð eftirvænting hefur ríkt í kringum þessa vöru enda ekki á hverjum degi sem atvinnumenn í íþróttum setja á markað hárgel. Oftar en ekki hafa þeir lagt nafn sitt við fæðubótarefni eða annað tengt heilsurækt en Logi og Björgvin eru miklir eldhugar og ætla að leggja undir sig hárgelsmarkaðinn á Íslandi og jafnvel víðar.

Björgvin upplýsir að hann hafi þegar komið sjö þúsund geldollum í umferð en hann viti í raun ekki hvernig salan hafi gengið. Miðað við fyrirspurnir hljóti hún að vera nokkuð góð. Björgvin er reyndar einn að vasast í þessu um þessar mundir því Logi er staddur í Ameríku í sumarfríi. „Og svo vil ég ekkert að einhverjir aðrir séu að vasast í því sem ég er að gera, ég treysti engum öðrum en sjálfum mér til að gera hlutina eins og á að gera þá,“ segir Björgvin.

Sölustaðir hárgelsins eru þó nokkrir, meðal annars 10-11, Hagkaup og Fríhöfnin í Keflavík. En þeir sem eiga í erfiðleikum með að nálgast gelið þurfa þó ekki að örvænta því í dag, föstudag, hefst sala á netinu. „Þetta er hugsað fyrir fólk sem getur ekki keypt gelið í sinni heimabyggð eða býr erlendis,“ segir Björgvin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.