Landvernd: Orkuveitan villir um fyrir fólki 6. febrúar 2009 14:21 Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar.
Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar segir að tilkynning Orkuveitunnar um að til standi að hefja hreinsun hveralyktar úr gufunni, sem kemur frá virkjun fyrirtækisins á Hellisheiði, sé til þess fallin að villa um fyrir fólki. Hann segir að látið sé hjá líða að greina frá því að losun brennisteinsvetnis er hvað mest þegar holur eru í blæstri. „Blástursferlið stendur yfir í nokkra mánuði áður en hægt er að taka holurnar í notkun. Ekki er hægt að hreinsa brennisteinsvetni úr holum sem eru í blæstri. Frekari boranir og holublástur á Hellisheiðinni samhliða nýjum virkjunum munu því auka mengunarálag af völdum brennisteinsvetnis," segir Bergur. „Nú hefur mengun frá starfandi virjunum náð heilsuverndarviðmiði Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar og eins og fram kemur í tilkynningu Umhverfisstofnunar eru langtímaáhrif brennisteinsvetnis í lágum styrk á heilsu fólks ekki vel rannsökuð. Æskilegt væri að Orkuveita Reykjavíkur setji upp og sannreyni hreinsivirki á starfandi virkjanir áður en ráðist verður í frekari boranir með tilheyrandi holublæstri og aukinni brennisteinsvetnismengun," segir hann einnig. Bergur staðhæfir einnig að engin reynsla sé komin á „þær tæknilegu lausnir sem lagðar eru til af hálfu OR, þ.e. niðurdælingu á brennisteinsvetninu. Því er alsendis óljóst um hvort lausnin sé raunhæf. Hefðbundnar og þekktar lausnir til hreinaunar á brennisteinsvetni fela jafnan í sér efnafræðilega útfellingu efnisins. "
Tengdar fréttir Orkuveitan vinnur að hreinsun hveralyktar Orkuveita Reykjavíkur hefur unnið að því um hríð að hefja hreinsun hveralyktar úr gufunni, sem kemur frá virkjun fyrirtækisins á Hellisheiði. Lyktinni veldur brennisteinsvetni og í vor mun hefjast blöndun þess við niðurrennslisvatn frá virkjuninni, þannig að því verður veitt niður í jarðhitageyminn, þaðan sem það kom upphaflega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. 6. febrúar 2009 12:05 Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira
Orkuveitan vinnur að hreinsun hveralyktar Orkuveita Reykjavíkur hefur unnið að því um hríð að hefja hreinsun hveralyktar úr gufunni, sem kemur frá virkjun fyrirtækisins á Hellisheiði. Lyktinni veldur brennisteinsvetni og í vor mun hefjast blöndun þess við niðurrennslisvatn frá virkjuninni, þannig að því verður veitt niður í jarðhitageyminn, þaðan sem það kom upphaflega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. 6. febrúar 2009 12:05