Heiðruðu Jackson á Hróarskeldu 4. júlí 2009 03:30 Hljómsveitin Hjaltalín heiðraði hinn sáluga Michael Jackson á Hróarskelduhátíðinni. fréttablaðið/daníel
Hljómsveitin Hjaltalín heiðraði Michael Jackson á tónleikum sínum á Hróarskelduhátíðinni á fimmtudagskvöld með því að spila lag hans Don't Stop 'til You Get Enough. Lagið var það síðasta sem hún tók fyrir uppklapp. „Við tókum það líka á Nasa á laugardagskvöldið [27. júní]. Það hitti mjög vel í mark og það var mikið dansað," segir Guðmundur Óskar Guðmundsson, bassaleikari Hjaltalín, sem skemmti sér vel á Hróarskeldu. „Þetta gekk rosalega vel. Við spiluðum fyrir stappað tjald af fólki, svona þúsund manns, og það var vel tekið í allt." Aðeins um tvö hundruð Íslendingar eru á Hróarskeldu í ár sökum lágs gengis krónunnar og var hluti þeirra mættur til að sjá Hjaltalín. „Maður sá að þegar við spiluðum Þú komst við hjartað í mér fóru allir Íslendingarnir á hreyfingu. Þá sá maður hverjir voru útlendingar og hverjir voru Íslendingar," segir Guðmundur. Fregnir af meiri þjófnaði á hátíðinni en áður hafa tröllriðið dönskum fjölmiðlum en Guðmundur segist ekkert hafa orðið var við slíkt. „Við vorum með allt okkar dót í mjög vel girtri aðstöðu baksviðs. Það var enginn séns að komast þangað nema að vera með þar til gerða passa og pappíra." Kira Kira spilaði á Hróarskeldu á þriðjudagskvöldið við góðar undirtektir og gafst liðsmönnum Hjaltalín tími til að hitta hana áður en þeir héldu á brott til Póllands þar sem þeir spiluðu í gærkvöldi. Aftur á móti gafst enginn tími til að blanda geði við stjörnur hátíðarinnar á borð við Oasis, Coldplay og Nick Cave. „Það gafst ekki mikið tækifæri til þess. Við þurftum að ná flugvél snemma um morguninn og við rétt náðum að labba um hátíðarsvæðið."
Mest lesið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Gurrý komin aftur á markaðinn Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Lífið Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Förðunardrottning selur á Framnesvegi Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Bíó og sjónvarp Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Fleiri fréttir Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Sjá meira