Kúgaðar konur fastar í skuldaklafa 4. mars 2009 18:30
Bágt efnahagsástand veldur því að fleiri konur en áður ákveða að búa áfram við ofbeldi í stað þess að skilja við maka sinn. Þær eru fastar í skuldaklafa, segir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Erlendar rannsóknar sýna að heimilisofbeldi eykst í erfiðu árferði. Ekki er að sjá að niðursveiflan í efnahagslífinu hafi haft þau áhrif hér á landi enn sem komið er í það minnsta, en komur á neyðarmóttöku á Landspítala á síðasta ári vegna ofbeldis á heimili voru um eitt hundrað, sem er svipað og árið áður. Sveiflur í aðsókn í Kvennaathvarfið eru vel þekktar og reynist oft erfitt að útskýra þær, en síðustu vikur hefur verið rólegt þar. „Fyrstu mánuðina eftir bankahrunið fengum við aftur á móti stærri hópa kvenna en nokkru sinni áður. Ekki fengið svo stóra hópa lengi," segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra samtaka um Kvennaathvarf. Alltaf reynist konum erfitt að slíta ofbeldissamböndum, en það er til marks um efnahagsástandið að sífellt fleiri sjá skilnað sem óyfirstíganlega hindrun. „Við sjáum stærra hlutfall kvenna fara aftur heim í óbreyttar aðstæður sem er áhyggjuefni og við sjáum fleiri konur hafa mjög miklar áhyggjur af því að geta ekki spjarað sig án maka síns utan hjónabandsins vegna mikilla skulda eða óseljanlegra eigna." Þá er mikil aukning í viðtölum, þar sem konur leita sér stuðnings og ráðgjafar án þess að koma til dvalar, og skal bent á að sú þjónusta er endurgjaldslaus. Og samsetning hópsins hefur breyst. „Við sjáum meira af íslenskum konum og minna af erlendum konum. Sem er þróun sem hefur verið akkúrat öfug undanfarin ár," segir Sigþrúður. Starfsfólk reynir að geta sér til um hvað veldur. „Fjölgun íslenskra kvenna skýrum við með því að konur sem áður höfðu í önnur hús að venda þurftu ekki á þjónustu athvarfsins að halda til að slíta sambúð, en hafi það ekki lengur og leiti þess vegna í Kvennaathvarfið. Það af hverju erlendum konum hefur fækkað eigum við erfitt með að skýra."
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira