Japönsk sýn á íslenskt landslag 11. júlí 2009 03:15 Ariko segir að Ísland minni hana mikið á æskuslóðirnar í Kyoto.fréttablaðið/stefán
Bók sem inniheldur íslenskar landslagsmyndir eftir japanska ljósmyndarann Ariko er nú fáanleg í bókabúðum hér á landi. Ariko, sem er mjög eftirsóttur ljósmyndari í heimalandi sínu og hefur unnið fyrir tímarit á borð við ID Magazine, er stödd hér á landi þess dagana við tökur á japönsku tónlistarmyndbandi. Ariko hefur heimsótt Ísland reglulega síðastliðin átta ár og eru myndirnar sem prýða bókina allar teknar á ferðum hennar um landið. „Ég bjó í fjögur ár í New York-borg og var í ljósmyndanámi við Parsons-háskólann. Þar kynntist ég nokkrum Íslendingum sem buðu mér með sér í heimsókn til Íslands. Þetta var árið 2002 og upp að því hafði ég alfarið einbeitt mér að portrett-ljósmyndun. Það breyttist þó þegar ég kom hingað og upplifði náttúrufegurðina hér. Ég hef ferðast mikið í gegnum árin vegna vinnunnar og kynnst ólíkum menningarheimum en þegar ég kom til Íslands þá fannst mér eins og ég væri í fyrsta sinn hluti af heiminum og jörðinni en ekki einhverri ákveðinni menningu.“ Ariko segir margt við Ísland minna sig á æskuslóðirnar í Kyoto og segir hún japanska lystigarða vera eins og smækkaða mynd af íslenskri náttúru. Bókin, sem á íslensku heitir Sól, kom út í Japan fyrir ári og hefur vakið mikla athygli þar og nú hefur Ariko ákveðið að deila Íslandssýn sinni með landanum. Hægt er að nálgast bókina í verslunum Pennans og í bókabúðinni Útúrdúr við hliðina á Nýlistasafninu.
Mest lesið „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Tónlist Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Lífið Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Lífið Girnileg pizzaloka sem þú verður að prófa! Lífið samstarf „Töluvert álag á líkama sem nálgast sextugt“ Lífið samstarf Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Lífið Fleiri fréttir Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Sjá meira