Innlent

Friðlýsingin sögð á skjön við Natóaðild

Friðlýsing landsins fyrir kjarnorkuvopnum gæti haft áhrif á komu herskipa Atlantshafsbandalagsins, þar sem ekki er venja að gefa upp hvaða skip eru búin slíkum vopnum og hver ekki.fréttablaðið/ÞÖK
Friðlýsing landsins fyrir kjarnorkuvopnum gæti haft áhrif á komu herskipa Atlantshafsbandalagsins, þar sem ekki er venja að gefa upp hvaða skip eru búin slíkum vopnum og hver ekki.fréttablaðið/ÞÖK

Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um að Ísland verði friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum. Tillaga um slíkt hefur oftsinnis verið lögð fram á þingi en aldrei hlotið nægan stuðning.

Samkvæmt áliti lögfræðingsins Bjarna Más Magnússonar stangast friðlýsing Íslands fyrir kjarnorku og umferð kjarnorkuknúinna farartækja á við skuldbindingar Íslands við aðild að Atlantshafsbandalaginu. Bandalagið hefur haft þá stefnu að gefa ekki upp hvort farartæki þess séu búin kjarnavopnum eður ei.

Árni Þór Sigurðsson er formaður utanríkismálanefndar. Árni segir að NATO verði að svara því sjálft hvort þetta hafi áhrif á veru Íslendinga í bandalaginu. Hann segist ganga út frá því að stjórnvöld sem sendi hingað herskip eða flugvélar verði að gefa út yfirlýsingar um að þau séu ekki búin kjarnorkuvopnum.

Árið 1984 lýsti ríkisstjórn Nýja-Sjálands yfir sams konar friðlýsingu landsins. Í kjölfarið slitu Bandaríkjamenn varnarsamstarfi við landið, sem nefnt var ANZUS. Árni Þór segir að ríkisstjórnin hljóti að fara í saumana á því hvaða afleiðingar slík yfirlýsing hér á landi hefði.

Þingsályktunartillaga um friðlýsingu hefur níu sinnum verið lögð fram, fyrst árið 1987, en aldrei fengist afgreidd. Á síðasta þingi lögðu þingmenn allra flokka, utan Sjálfstæðisflokks, fram slíka tillögu.

Samtök hernaðarandstæðinga hafa á undförnum árum sent sveitarfélögum erindi um friðlýsingu og nú er svo komið að einungis fimm sveitarfélög hafa ekki samþykkt friðlýsingu. Þau eru: Grímsnes- og Grafningshreppur, Skútustaðahreppur, Reykjanesbær, Sandgerði og Vogar. Ákvæðum um friðlýsingu hefur þó ekki verið beitt gegn herskipum sem hingað til lands hafa komið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×