Davíð forðaði sér á stökki 10. febrúar 2009 10:02 Mótmælandi hlýðir á Bubba eftir að hafa elt Davíð inn í Seðlabankann.
Mótmælendur eltu Davíð Oddsson, Seðlabankastjóra, fyrir utan bankann í morgun en Davíð komst undan þeim með naumindum. Lögreglan stöðvaði mótmælendur þegar þeir ætluðu að fara inn um innganginn á eftir Davíð. „Við sáum hann gægjast fyrir horn en hann var mættur snemma í morgun, hann forðaði sér á stökki þegar hann sá okkur" segir Hörður Torfason, sem tók sprettinn ásamt öðrum mótmælendum um leið og þeir sáu seðlabankastjórann. Að sögn Harðar stóð Davíð við vegg nálægt innganginum með kaffikrús í hendi og fylgdist með pottaglamri mótmælanda. Þegar Hörður tók eftir honum tók hann á rás á eftir Davíð ásamt öðrum mótmælendum. Davíð forðaði sér en á milli hans og útidyrahurðarinnar voru um fjórir metrar að sögn Harðar. Svo virðist sem Davíð hafi snúið á mótmælendur, ólíkt gærdeginum, því hann var mættur snemma til vinnu. „Lögreglan stöðvaði okkur við innganginn," segir Hörður sem horfði á eftir Davíð hverfa inn í bankann. Aðspurður segir hann Davíð ekki hafa litið um öxl þegar inn var komið. Það var góð stemmning hjá mótmælendum þegar haft var samband við Hörð. Veðrið var kalt, „en það er alveg ofboðslega fallegt veður," segir Hörður sem lætur frostið ekki bíta á sig. Sjálfur vaktaði hann bílainnkeyrslu bankans en hinu megin við húsið spilaði Bubbi Morthens fyrir mótmælendur. Að sögn Harðar var ekki mikill viðbúnað lögreglu fyrir utan bankann, allavega minni en í gær, að hans mati. Sjálfur taldi Hörður að um hundrað mótmælendur stæðu vaktina fyrir utan Seðlabankann. Hann gerði ráð fyrir því að mótmælin stæðu til hádegis, í það minnsta.
Mest lesið Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Innlent Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Innlent Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira