FME: Svarar ekki hvort það hafi vitað af Icesave tilboði Breta 4. febrúar 2009 14:40 Björgvin G. Sigurðsson.
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra hefur svarað fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur þingkonu Framsóknarflokksins sem hún lagði fram á Alþingi fyrir jólin um stöðu bankamála og Icesave- ábyrgðir. Spurningar Sivjar voru í sjö liðum. Í svörum Björgvins kemur meðal annars fram að hann hafi ekki haft vitneskju um tilboð breska fjármálaráðuneytisins (FSA) á sínum tíma um að gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu væri FSA tilbúið að færa reikninga Icesave yfir í breska lögsögu. Fjármálaeftirlitið á Íslandi vill hins vegar ekki gefa upp hvort stofnunin hafi vitað af tilboðinu. Siv spurði einnig hvort forstjóri Fjármálaeftirlitsins hafi verið í símasambandi við FSA sunnudaginn 5. október síðastliðinn og játti Björgvin því að stofnunin hafi verið í símasambandi við FSA umræddan dag. Siv vildi einnig vita hvort Fjármálaeftirlitið hafi vitað af tilboði FSA og svaraði Björgvin því til að stofnunin geti ekki tjáð sig um efni samskipta við aðra eftirlitsaðila. „Í hvað telur ráðherra að sé vísað hér í símtali fjármálaráðherra við Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta: Darling: „Ég tek því þá sem svo að loforðið sem Landsbankinn gaf okkur um að hann fengi 200 milljónir punda í reiðufé sé einnig fyrir bí?" Ráðherra: „Já þeir fengu ekki það fé."? Telur ráðherra að þessi tilvísun tengist Icesave-ábyrgðunum," spurði Siv einnig og Björgvin svaraði því til að hann hafi ekki verið aðili að samtalinu en að ekkert bendi til þess að vísað sé til orða sem féllu á fundi Björgvins með Alistair Darling 2. september síðastliðinn. Björgvin svaraði því einnig til að hann hafi upplýsti ráðherra ríkisstjórnarinnar um umræður og niðurstöður fundar síns með Alistair Darling sem haldinn var þann 2. september og fjallaði um stöðu bankamála og ábyrgðir vegna Icesave-reikninga. Hann hafi hins vegar ekki haft samráð við Árna Mathiesen áður en fjármálaráðherrann ræddi við kollega sinn í Bretlandi þann 7. október. Að síðustu neitaði Björgvin því að hann hafi rætt við fjármálaráðherra um að eðlilegra væri að hann en ekki fjármálaráðherra ætti símtal við Alistair Darling um stöðu bankamála þann 7. október, í ljósi þess að hann en ekki fjármálaráðherra hafi áður átt fund með Darling 2. september vegna bankamálanna og Icesave-ábyrgðanna?
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira