Innlent

Brotist inn í dýraspítalann í Víðidal

Brotist var inn í dýraspítalann í Víðidal um klukkan fjögur í nótt og þaðan stolið ýmsum lyfjum. Annað var látið eiga sig.

Vitni sáu til bíls aka frá spítalanum um þetta leyti og náðu númerinu. Lögregla hefur ekki fundið bílinn en þegar haft var samband við eigandann kom í ljós að bíl hans hafði verið stolið. Það er því enn allt á huldu um það hverjir stálu honum og lyfjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×