Deilt um prjóna og Facebook á bæjarstjórnarfundi 25. nóvember 2009 10:26
Tveir bæjarfulltrúar í Hafnarfirði deildu um prjóna og samskiptavefinn Facebook á fundi bæjarstjórnar í gær. Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sagði áhugaleysi bæjarfulltrúa meirihlutans með ólíkindum. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar svaraði um hæl og sagðist vera ofvirk og eiga auðveldara með að halda athygli þegar hún prjónar. Ekkert af þessu var þó bókað í fundargerð því deilurnar áttu sér stað netinu. Nánar til tekið á Facebook. Bæjarstjórnarfundurinn hófst klukkan tvö eftir hádegi og stóð í þrjár og hálfa klukkustund. Á miðjum fundi skrifaði María Kristín Gylfadóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, á heimasvæði sitt á Facebook að hún teldi að fjölmiðlar ættu að mæta á fundinn til að ná mynd af þremur bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar að prjóna. Áhugaleysi þeirra væri með ólíkindum. Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, svaraði Maríu Kristínu fullum hálsi. „María, við prjónum til að halda fókus og athygli, ættir að prófa það í staði þess að vera að hanga á Facebook á fundum." María Kristínu gaf lítið fyrir þau orð og sagði lítið fara fyrir virkni Margrétar og félaga hennar í Samfylkingunni á fundum bæjarstjórnar. „Ég veit svei mér þá ekki hverju þessi fókus og öll athyglin skilar Margrét, amk fer ekki mikið fyrir virkni ykkar hér. Tölvurnar notum við aðallega og mest til að ná í gögn til að geta tekið þátt í fundinum." Í framhaldinu sagðist Margrét Gauja ekki skilja af hverju fólk væri að agnúast út í prjónaskap á fundum sem þessu. „Það er mælt með þessu í námsráðgjöf t.d ef fólk þarf að sitja á löngum fyrirlestrum og slíkt. Virkar vel fyrir mig, má ég þá ekki nota þetta? Verandi ofvirk ;)"
Mest lesið Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Innlent Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Innlent Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Erlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar Innlent Bein útsending: Kynna atvinnustefnu og aðgerðir gegn verðbólgu Innlent Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Innlent Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Fleiri fréttir „Ný atvinnustefna Íslands markar tímamót“ Valkyrjurnar boða aðgerðir til að takast á við Verðbólguna Nýtt framboð í Reykjavík á elleftu stundu Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Fjölmiðlahugtakið sagt útþynnt og gagnslaust Bein útsending: Kynna atvinnustefnu og aðgerðir gegn verðbólgu „Að mínu mati lýsir þessi dómur ekki réttlæti“ Helmingur hefur áhyggjur af áróðursherferðum erlendra ríkja Kom fyrir hlerunarbúnaði en var sýknaður: „Úrskurður græjaður núna hviss bamm búmm“ Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Íris bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í Eyjum Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Sjá meira