Þrefalt met í fjölda fanga hér á landi 12. júní 2009 04:30 Í hegningarhúsinu er nú tvísett í fimm klefum. Einnig er tvísett í klefum í fangelsunum í Kópavogi og á Akureyri, samkvæmt upplýsingum Fangelsismálastofnunar.
Vista hefur þurft allt að sjö gæsluvarðhaldsfanga í lögreglustöðinni við Hverfisgötu á undanförnum dögum, þar sem öll fangelsi landsins eru stappfull. Aldrei fyrr hafa jafnmargir setið í fangelsi hér á landi og nú, samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun. Í gær voru um 180 fangar í fangelsum landsins. Þar af voru ríflega 150 manns í afplánun, sem er met. Þá voru tæplega 30 í gæsluvarðhaldi, sem er einnig met. Í einangrun sitja nú sextán manns, sem er þriðja metið. Öll rými eru fullnýtt og tvísett í stærri klefana, sem eru fimm í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg, tvö í fangelsinu í Kópavogi og einn í fangelsinu á Akureyri. Við blasir að tvísetja þurfi einnig í einhverja klefa á Litla-Hrauni, ef fram heldur sem horfir. Einangrunarpláss í fangelsum landsins eru tíu talsins. „Þetta er talsvert meira heldur en nokkru sinni fyrr og fjöldaþróunin mjög hröð og brött,“ segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar. „Jákvæða hliðin er sú að lögreglan er að standa sig miklu betur heldur en áður.“ Hann segir starfsfólk í fangelsum landsins standa sig ótrúlega vel miðað við aðstæður. Sé tekið meðaltal fjölda fanga í gæsluvarðhaldi á ári frá 1996 kemur í ljós að þeir hafa verið einn til fjórir á ári, þar til árið 2008. Þá rauk fjöldinn upp. „Við erum að ná fleirum og dómar eru að þyngjast, sem þýðir að það þarf fleiri pláss,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir það nánast afrek hvernig Fangelsismálastofnun hafi tekist að halda uppi því þjónustustigi sem hún geri. „En það er ekki hægt að gera það til lengdar nema að undan láti,“ segir lögreglustjóri. Hann segir vaxandi fjölda fanga, þar á meðal gæsluvarðhaldsfanga, til kominn meðal annars vegna stórra fíkniefnamála. Fíkniefnadeild LRH sé að skila miklum árangri sem menn séu mjög stoltir af. „Þá er nálgun varðandi kynferðisbrot og alvarlegri ofbeldisbrot að breytast,“ segir Stefán. „Við erum í mjög auknum mæli að krefjast gæsluvarðhalds yfir þeim sem eru grunaðir í slíkum málum á grunni rannsóknarhagsmuna að sjálfsögðu, en einnig á grunni almannahagsmuna sem er stefnubreyting af okkar hálfu. Þar erum við að svara kalli almennings um að tekið sé af festu á þessum alvarlegu brotum.“
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira