Innlent

Hraðakstur og innbrot í nótt

Lögregla stöðvaði í nótt ökumann sem hafði ekið á 163 kílómetra hraða við Höfðabakkabrúnna. Þegar nánar var að gáð kom í ljós að maðurinn, sem er fæddur 1980, hefur aldrei tekið bílprófið og verður einhver bið á því að það verði í boði fyrir hann í nánustu framtíð. Þá var ungur ökumaður tekinn á 153 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn er 80 kílómetrar. Sá er fæddur árið 1992 og sagði lögregla að stimpillinn í ökuskírteini drengsins hafi varla verið þornaður þegar hann var stöðvaður. Þá var tilkynnt um innbrot í húsgagnaverslun í Kópavogi nú í morgunsárið, lögreglumenn eru enn á staðnum og því ekki ljóst hvort þjófarnir hafi náð að komast með mikinn feng á brott.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×