Vera kann að auglýsa þurfi stöðuna 12. júní 2009 05:30 Mun skipa hæstaréttarlögmann sem sérstakan ríkissaksóknara í málefnum sem varða bankahrunið. fréttablaðið/stefán
Setja á Björn Bergsson hæstaréttarlögmann sem sérstakan ríkissaksóknara í málum er varða bankahrunið. Ekkert setningarbréf hefur hins vegar verið gefið út en enginn tímarammi verður á skipun hans. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra gerir ekki ráð fyrir að staðan verði auglýst. „Ef þú setur einhvern til að fara með eitt einstakt mál þá þarf ekki að auglýsa það. Björn verður settur ríkissaksóknari í einstökum málum en það leysir ekki þá stöðu að ríkissaksóknari er búinn að segja sig frá málaflokknum í heild sinni," segir Ragna. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari sagði sig frá málefnum er varða bankahrunið 18. maí síðastliðinn þar sem sonur hans var einn af aðalstjórnendum Exista. Ragna segist vera að vinna að lagabreytingu sem hún kynnir fyrir ríkisstjórninni á morgun þar sem heimilt verður að setja sérstakan ríkissaksóknara sem varðar bankahrunið. Engin lagaheimild er í núgildandi lögum til þess að skipa sérstakan ríkissaksóknara í heilum málaflokki, einungis í einstökum málum, að sögn Rögnu. Í áliti umboðsmanns Alþingis frá því 29. desember 2008, sem hann tók til athugunar að eigin frumkvæði, um setningu Björns Rúnars Sigurðssonar sem skrifstofustjóra á nýrri efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu forsætisráðuneytisins, kemur fram að auglýsa hefði þurft stöðuna. Trausti Fannar Valsson, lektor í stjórnsýslurétti við Háskóla Íslands, segir að við setningu embættismanns sé gert ráð fyrir því að auglýsa þurfi stöðuna en á því séu undantekningar. Fyrst og fremst ef starfið er ekki talið aðalstarf. Það á til dæmis við um setu í nefndum á vegum ríkisins, segir Trausti. Dómsmálaráðherra gerir hins vegar ráð fyrir að starf sérstaks ríkissaksóknara verði aðalstarf. Enn eigi þó eftir að útfæra það. Í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna er mælt fyrir í 24. gr. að leyfilegt sé að setja mann til að gegna embætti um stundarsakir ef embættismaður fellur frá, er fjarverandi vegna veikinda eða af öðrum ástæðum. Þó aldrei lengur en í eitt ár. „Það hefur ekki verið útilokað að hægt sé að beita þessu ákvæði þótt mér sé ekki kunnugt um að á það hafi reynt. Þar fyrir utan kann að vera eðlilegt að stjórnvöld auglýsi störf til að tryggja vandaða stjórnsýsluhætti og í störfin veljist hæfasti einstaklingurinn," segir Trausti.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira