Einar Karl á tvöföldum launum hjá ríkinu 12. júní 2009 11:06 Einar Karl Haraldsson, nýráðinn almannatengslaráðgjafi Landsspítalans. Mynd/GVA
Einar Karl Haraldsson, nýráðinn almannatengslaráðgjafi Landsspítalans, þiggur biðlaun sem fyrrverandi aðstoðarmaður iðnaðarráðherra auk þess að þiggja verktakagreiðslur frá Landsspítalanum. Þetta staðfestir Einar í samtali við Vísi. Einar Karl var aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar, fyrrverandi iðnaðarráðherra, þar til hann lét af embætti þann 10. maí. Einar á lögum samkvæmt rétt á biðlaunum í þrjá mánuði eftir að hann lætur af starfi, eða fram í ágústmánuð. Hverfi hann til annars starfs á vegum ríkisins innan þess tíma falla biðlaunin hins vegar niður. Einar Karl var nýverið ráðinn til Landsspítala Íslands til að festa í sessi nýtt vinnulag á sviði almannatengsla. Þar hefur hann störf 1. september. Fram að þeim tíma þiggur hann verktakagreiðslur á meðan hann undirbýr vinnuna framundan. Verktakagreiðslurnar bætast við biðlaunin, sem ella hefðu fallið niður. Aðspurður hverju þetta sæti segir Einar að hann hyggist taka sér langt sumarfrí og sé einfaldlega í tímavinnu sem verktaki við að átta sig á hlutunum og undirbúa haustið. „Það er ekki gott að koma einu skrefi á eftir inn í þetta. Ég tel algjörlega nauðsynlegt til að maður geti tekið lotu með [nýrri framkvæmdastjórn Landsspítalans] í haust að maður viti hvað þau eru að hugsa," segir Einar og segist aðspurður ekki telja óeðlilegt að hann þiggi bæði verktakagreiðslur og biðlaun hjá hinu opinbera.
Tengdar fréttir Einar Karl segist ekki fá greiðslur sem verktaki „Ég fæ engar greiðslur á þessu tímabili frá Landsspítalanum á meðan ég er á biðlaunum," segir Einar Karl Haraldsson. Einar hafði samband við Vísi og gerði athugasemdir við frétt sem birtist um launagreiðslur til hans frá ríkinu fyrr í dag. 12. júní 2009 12:27 Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira
Einar Karl segist ekki fá greiðslur sem verktaki „Ég fæ engar greiðslur á þessu tímabili frá Landsspítalanum á meðan ég er á biðlaunum," segir Einar Karl Haraldsson. Einar hafði samband við Vísi og gerði athugasemdir við frétt sem birtist um launagreiðslur til hans frá ríkinu fyrr í dag. 12. júní 2009 12:27