Innlent

Verðið betra nú en fyrir ári

Björgólfur Thor Björgólfsson yfirtók Actavis sumarið 2007 en það voru stærstu fyrirtækjakaup Íslandssögunnar. Fréttablaðið/anton
Björgólfur Thor Björgólfsson yfirtók Actavis sumarið 2007 en það voru stærstu fyrirtækjakaup Íslandssögunnar. Fréttablaðið/anton

Hugsanlegt er að Actavis sé annað þeirra tveggja fyrirtækja sem þýska samheitalyfjafyrirtækið Stada er að skoða kaup á að öllu leyti eða að hluta standi slíkt til boða.

Þetta hefur Bloomberg-fréttaveitan eftir Harmut Tetzlaff, stjórnarformanni Stada, að loknum aðalfundi félagsins en hann sagði félagið nú skoða kaup á öðrum samheitalyfjafyrirtækjum sem í fyrra voru of hátt verðlögð en hafi í kjölfar kreppunnar fengið öllu bærilegri verðmiða.

Stada er sjötta umsvifamesta samheitalyfjafyrirtæki heims.

Bloomberg segir Actavis og þýska fyrirtækið Ratiophram koma helst til greina. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×