Útilokar ekki uppsagnir 12. janúar 2009 20:08 Lúðvík geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, á borgarafundinum í Hafnarfirði á laugardaginn.
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, útilokar ekki að starfsfólki heilbrigðisstofnanna verði sagt upp störfum í tengslum við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á heilbrigðiskerfinu. ,,Ég get ekkert fullyrt um það yfir línuna," sagði Guðlaugur aðspurður í Kastljósi í kvöld hvort hann gæti fullyrt að engum verði sagt upp vegna aðgerðanna. Hann sagði að kerfið væri í stöðugri þróun. Mótmælin dynja á ráðherranum hvaðanæva að vegna sparnaðaraðgerða sem kynntar voru í seinustu viku. Á laugardaginn var hann til að mynda púaður niður á tvöþúsund manna fundi í Hafnarfirði um framtíð Sankti Jósefsspítala sem verður lagður niður í núverandi mynd. Markmiðið er að vernda heilbrigðisþjónustuna Guðlaugur sagði að tekjufall ríkissjóðs væri afar mikið og við því þyrfti að bregðast. Það sé meðal annars gert með því að sameina heilbrigðisstofnanir og um leið efla þjónustuna. Flatur niðurskurður hefði komið niður á heilbrigðiskerfinu að mati Guðlaugs og af þeim sökum var hann ekki fýsilegur kostur. Markmiðið sé að vernda þjónustuna. Hugnast ekki einkavæðing Árni Sigfússon, bæjarstjórinn í Reykjanesbæ, hefur sagt að mikilvægt sé að bæjarfélagið taki við allri heilbrigðisþjónustu í bænum svo íbúar missi ekki nauðsynlega þjónustu. Rætt hefur verið um að Róbert Wessman komi að nýtingu skurðstofa sjúkrahússins í Reykjanesbæ. Guðlaugur sagðist ekki vera búinn að færa neinar sjúkrastofnanir til sveitarfélaga, Reykjanesbæjar í þessu tilfelli. ,,Ég ætla ekki að tjá mig um einstaklinga," sagði ráðherran aðspurður um hlut Róberts í málinu. Guðlaugur sagði að þriðjungur heilbrigðiskerfisins væri nú þegar einkarekinn. Hann sagði að sér hugnaðist ekki einkavæðing í heilbrigðiskerfinu en einkarekstur væri annað. Að hans mati er grundvallaratriði að fólki sé ekki mismunað eftir efnahag.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Fleiri fréttir Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Sjá meira