Undirbúningi rafrænnar sjúkraskrár verði hraðað 30. janúar 2009 11:11 Landspítalinn.
Lagt er til í áliti stýrihóps um upplýsingatækni að undirbúningi rafrænnar sjúkraskrár fyrir landið allt verði hraðað. Stýrihópur um upplýsingatækni hefur skilað áfangaskýrslu sinni til Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, og hvetur eindregið til átaks í rafrænum samskiptum í heilbrigðisþjónustu. „Stýrihópurinn var skipaður síðast liðið sumar og var falið að fjalla um þá möguleika sem liggja í rafrænum samskiptum í heilbrigðisþjónustunni einkum með tilliti til heilbrigðisnetsins og uppbyggingar rafrænnar sjúkraskrár. Fyrir hópnum lá það verkefni að gera tillögur um hvernig ná mætti fram stefnumiðum heilbrigðisráðuneytisins fyrir upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu næstu 5 til 8 árin og hvernig uppbyggingu rafrænnar sjúkraskrár skyldi háttað á Íslandi á næstu 3 til 5 árum,“ segir á vef heilbrigðisráðuneytisins. Tillögur starfshópsins yggjast á greiningu og stöðumati á umfangi og kostnaði við upplýsingatækni á heilbrigðissviði. Í meginatriðum fjalla þær um áframhaldandi uppbyggingu og rekstur rafrænnar sjúkraskrár og heilbrigðisnets. „Tillögurnar eru í fimm liðum en megin tillagan er sú að þegar á þessu ári verði gerð kröfulýsing sem gæti orðið grundvöllur útboðs hins almenna hluta sjúkraskrár er taki til landsins alls. Um 1300 milljónir króna renna nú til upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustunni í heild sinni, m.a. til nettenginga, búnaðar, hugbúnaðarleyfa, þjónustu, o. fl. Það er mat starfshópsins að mögulegt sé að nýta þetta fé enn betur með aukinni samvinnu og samnýtingu mannafla og búnaðar í verkefnum sem tengjast rafrænni sjúkraskrá.“
Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Sjá meira