Mikill niðurskurður hjá utanríkisráðuneytinu Sigríður Mogensen skrifar 20. júní 2009 13:00
Varnamálastofnun Íslands verður lögð niður á þessu ári og framlög til þróunarsamvinnu og friðargæslu dregin verulega saman. Þá á að selja embættisbústaði og loka sjö sendiskrifstofum. Þetta er hluti af niðurskurði í utanríkismálum. Framundan er mikill niðurskurður í opinberum rekstri og í mörg horn að líta. Utanríkisráðuneytið hefur kynnt í grófum dráttum niðurskurðartillögur sínar. Meðal þess sem á að skera niður á þessu ári eru framlög til Varnarmálastofnunar Íslands og verður stofnunin lögð niður í núverandi mynd. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að sá niðurskurður muni ekki bitna á núverandi varnar- og öryggisskuldbindingum Íslendinga. Einnig verða framlög til þróunarsamvinnu og friðargæslu dregin verulega saman á meðan Íslendingar ganga í gegnum efnahagsþrengingar. Þá verður sendiskrifstofum fækkað á þessu ári og því næsta og starfsliði í heild fækkað. Áætlað er að sjö sendiskrifstofum verði lokað á árinu. Og ráðuneytið hefur einnig ákveðið að selja embættisbústaði í New York, Washington, London, Ottawa og Tókýó. Andvirði þeirra á að leggja í ríkissjóð. Á næstunni mun fækka nokkuð í hópi sendiherra og ekki er gert ráð fyrir að nýir verði skipaðir í staðinn um sinn. Samtals er um að ræða 190 milljóna króna viðbótarsparnað á yfirstandandi ári. Á næst ári sker utanríkisráðuneytið niður rekstrarútgjöld um 10% til viðbótar áður ákveðnum sparnaði. Þorri útgjalda utanríkisráðuneytisins eru í erlendri mynt og því er ráðuneytið viðkvæmara fyrir áhrifum gengisbreytinga en annar rekstur ríkisins. Varnamálastofnun á sér ekki langa sögu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir beitti sér fyrir stofnun hennar í ríkisstjórn Geirs H. Haarde, eftir að herinn hvarf að landi brott. Stofnunin tók til starfa í byrjun júní 2008 og var ætlað að sjá um öll samskipti við Atlantshafsbandalagið og varnamálaráðuneyti annarra ríkja sem Ísland er í samstarfi við. Deilur voru um það í ríkisstjórninni hvort stofna ætti Varnamálastofnun og hvort hún ætti að heyra undir utanríkisráðherra eða dómsmálaráðherra en Björn Bjarnason hafði efasemdir um að stofnunin þjónaði tilgangi sínum og vildi að starfsemi hennar félli undir landhelgisgæsluna. Áætlaður heildarkostnaður til varnarmála það ár var 1.350 milljónir króna.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Sjá meira