Orkuskattur nái ekki út á land 8. október 2009 05:00 Jón Bjarnason vill standa vörð um atvinnulífið á landsbyggðinni.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, vill að áformaður orku-, umhverfis- og auðlindaskattur leggist ekki á fyrirtæki á landsbyggðinni. Slíkir skattar hafi enda slæm áhrif. Jón upplýsti um þessa skoðun sína á Alþingi í gær. Einar K. Guðfinnsson Sjálfstæðisflokki innti Jón eftir afstöðu hans til málsins. Jón svaraði því til að hann hefði við kynningu málsins í ríkisstjórn lagt áherslu á að horft yrði til þess að þetta íþyngdi ekki atvinnulífi og byggðum á landsbyggðinni þar sem áhrif af sértækum sköttum kynnu að hafa margföld áhrif. Hitt væri annað mál að stjórnin stæði frammi fyrir gati á fjárlögum sem væri afleiðing stjórnarstefnu Sjálfstæðisflokksins á undanförnum áratug. Ekki væri sársaukalaust að leysa úr þeim málum. „En ég vil standa vörð um atvinnulífið á landsbyggðinni og að þar njóti menn jafnræðis,“ sagði Jón að lokum. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að nýr orku-, umhverfis- og auðlindaskattur afli ríkissjóði allt að sextán milljarða króna á næsta ári. Eftir er að útfæra hugmyndina.- bþs
Mest lesið Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Innlent Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira