Sannfærður um að ESB aðild muni skapa ný atvinnutækifæri 8. október 2009 13:42 Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segist vera sannfærður um að aðild Íslands að Evrópusambandinu muni skapa ný atvinnutækifæri. Hann segir að frjálshyggjutilraun síðustu tveggja áratuga hafi mistekist herfilega og að þjóðin verði áratugi að jafna sig. Þetta kom fram í ræðu Kristjáns á þingi Starfsgreinasambandsins sem nú stendur yfir á Selfossi. Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, ávarpaði þingið í morgun. Formaðurinn sagði að frjálshyggjutilraunin undanfarinna ára hafi mistekist. „Og hver er staðan núna ári síðar? Hún er skelfileg. Það er sviðin jörð hvert sem litið er og ekki eru öll kurl komin til grafar. Svo virðist sem lukkuriddarar frjálshyggjunnar hafi látið greipar sópa í íslensku atvinnulífi. Það eina sem er eftir af fjölskyldusilfrinu eru lífeyrissjóðirnir." Kristján telur að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu sé mikið fagnaðarefni. Hann sagðist hafa vilja sjá hana verða að veruleika við aðrar aðstæður. „Við hefðum átt að vera búin að sækja um fyrir alllöngu. Þá hefðu allir samningar verið okkur hagstæðari og það er með öllu óvíst að við værum í þeim sporum sem við erum í dag hefðum við borið gæfu til að stíga þetta skref fyrr." Hann sagði Starfsgreinasambandið hafa alla tíð talað einum rómi varðandi mögulega aðild okkar að Evrópusambandinu. „Ég er sannfærður um að innganga í ESB mun færa okkur ný atvinnutækifæri."
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fleiri fréttir Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Sjá meira