Eftirlitsmaðurinn er mættur hingað 8. október 2009 03:00 Leiklist Hver er í alvörunni og hver er að þykjast? Mjúkir en sjúkir litir í búningum, förðum og ljósi. Myndin er tekin á æfingu í vikunni. Fréttablaðið/Anton
Annað kvöld er frumsýning í Nemendaleikhúsi Listaháskóla Íslands. Verkið er nú sett upp í þriðja sinn hér á landi en hefur löngum verið talið eitt öndvegisverk rússneskra leikbókmennta: Eftirlitsmaðurinn eftir Gogol. Þetta er fyrsta verkefni útskriftarhópsins á lokaári: Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Ævar Þór Benediktsson fara á næsta vori út í lífið. Það er engu logið um að verkið er mögnuð háðsádeila. Nú er það leikið í nýrri þýðingu Bjarna Jónssonar, leikritahöfundar og þýðanda. Leikritið Eftirlitsmaðurinn gerist í lítilli borg þar sem spillingin er allsráðandi. Ráðamenn mergsjúga þegnana og samfélagið líður fyrir græðgi og lágar hvatir þeirra sem deila og drottna. Mútur og svik eru daglegt brauð. Því verður uppi fótur og fit þegar fréttist að mættur sé á svæðið eftirlitsmaður frá Pétursborg til að taka út stjórnsýsluna. Í öllu uppnáminu fer hin makráða stétt villur vegar: hún telur eftirlitsmanninn vera aðkomumann sem sestur er upp í bænum en sá er á flótta undan réttvísinni, spilafífl og raupari, hrappur í fínum fötum. Úr verður krassandi flétta þar sem allt er lagt í sölurnar til að bjarga eigin skinni og koma sér í mjúkinn hjá hinum grunaða eftirlitsmanni. Gogol hefði orðið 200 ára í ár en er svo sannarlega sígildur í bestu merkingu þess orðs. Hann er talinn til höfuðskálda Rússa og leikritið Eftirlitsmaðurinn er álitið þjóðargersemi þar í landi. Þekktasta skáldsaga hans er vafalaust Dauðar sálir sem kunn er í íslenskri þýðingu. Leikstjóri er Stefán Jónsson, leikmynd er í höndum Móeiðar Helgadóttur, Myrra Leifsdóttir sér um búninga og gervi, tónlist er samin af Margréti Kristínu Blöndal sem kunnari er sem Magga Stína, en hún stundar nú nám í tónsmíðum í LHÍ, og lýsing er í höndum Mika Haarinen, skiptinema í LHÍ. Frumsýning á Eftirlitsmanninum er á morgun og verða sýningar í Smiðjunni á Sölvhólsgötu en í vetur verða þrjár sýningar í Smiðjunni. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira