Innlent

Tveggja ára dómi snúið við í Hæstarétti

Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann sem ákærður var fyrir líkamsárás og rán með því að hafa í félagi við óþekktan mann slegið annan mann nokkrum sinnum í andlitið og rænt hann farsíma og seðlaveski sem í voru 100 þúsund krónur. Áður hafði héraðsdómur dæmt manninn í tveggja ára fangelsi og til þess að greiða stefnanda rúmar sjöhundruð þúsund krónur í bætur.

Hæstarétti þótti ósannað að maðurinn væri sekur og bent var á að við myndsakbendingu hefði fórnarlambið bent á mynd sem ekki var af ákærða. Þá kom ekkert fram við húsleit, rannsókn á símnotkun ákærða eða við frekari rannsóknir sem tengja mætti við ákæruatriðin. Var hann því sýknaður og skaðabótakröfu vísað frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×