Kapphlaup við tímann að hefja bólusetninguna 8. október 2009 18:30
Sóttvarnalæknir segir það kapphlaup við tímann af hefja bólusetningu til að hefta útbreiðslu svínaflensunnar. Hún hefur sótt í sig veðrið á höfuðborgarsvæðinu og hafa níu manns verið lagðir inn á sjúkrahús síðustu vikur, þar af tveir á gjörgæslu. Talið var að inflúensa H1N1 - sem jafnan er nefnd svínaflensa - væri í rénun, en annað hefur komið á daginn. „Það sem við erum að sjá er að faraldurinn er að sækja í sig veðrið á höfuðborgarsvæðinu. Við sjáum það ekki enn á landsbyggðinni, en tilfellum fer fjölgandi eftir að þeim fór fækkandi um hríð," segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir. Flensan sækir nú á af nokkrum þunga og hafa níu manns verið lagðir inn á sjúkrahús frá því í byrjun september, þar af tveir á gjörgæslu. Allt er þetta fólk með aðra undirliggjandi sjúkdóma, en það er einmitt hópurinn sem er í forgangi þegar bólusetning hefst í byrjun nóvember. Bólusetningin fer seinna af stað en ætlað var, þar sem töf varð á afgreiðslu lyfjanna. Reynt verður að ná til sem flestra landsmanna, en litið er á heimsfaraldur inflúensu sem grafalvarlegt mál. „Það þarf bara að passa upp á að fólk veikist ekki hastarlega. Við höfum ennþá inflúensulyfin sem við getum gefið. En svo er það auðvitað kapphlaup við tímann að hefja bólusetningar og bagalegt að það hefur tafist að við fáum þetta en við vonum hið besta." Bólusetning mun fara fram á heilsugæslustöðvum í landinu, Landspítala og sjúkrahúsinu á Akureyri og er vonast til að henni verði lokið síðla í janúar á næsta ári.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira